Ég hef eftir nokkrar pælingar komist að því að sannleikurinn um tilurð alheims eins og við skynjum hann sé sá að ekkert getur verið skapað nema andstæða þess sé skapað líka (jörð - himinn, heitt - kalt, illgirni - góðgirni t.d.). Ástæðan fyrir því að sköpunarferlið fór af stað er sú að að að að að að...bíddu þetta er allveg að koma...
Gat ekki verið betur orðað?
Já og fyrst að það varð til upphaf þá kemur heimsendir hehe, kannski ekki á morgun. Sko.
Stríð sauðkindanna gegn hunangsflugunum.
Ertu að segja að til sé einhver skapari?
Ritstjórn skapaði heiminn, hvað er eiginlega hlaupið í ykkur hér ?Klórar sér í höfðinu
Grallaraspóar.
Já nákvæmlega. Ritsjórn kom ferlinu af stað. Þá er málið leyst.
Ef ég er til, er ég þá yfir meðaltali?? Klórar sér í höfðinu
Ég er að vinna að nýrri kenningu í kringum hugtakið meðaltil.
Meðaltil er meðaltilvist safns fyrirbæra. Samkvæmt þessu kenningakerfi er tilvist ekki háð hinni gömlu og úreltu tvíundarökfræði, þar sem gefið fyrirbæri er annað hvort til eða ekki til. Þess í stað er tilvist breytileg frá fyrirbæri til fyrirbæris.
Fyrsta skrefið í kenningakerfinu er að setja fram aðferð til að reikna tilvist hvers fyrirbæris fyrir sig. Hugmyndir eru vel þegnar.
Hmmm... þú ert nú kominn ansi nálægt existensíalískum heimspekipælingum þarna, það væri kannski hægt að reikna út hversu margir þurfa fyrirbærið eða upplifa það;
sbr. ef A bíður eftir B á kaffihúsi en B kemur ekki þá skiptir fjarvera B engan annan máli heldur en A, en þá væri B til í einni einingu akkúrat á þeirri stundu vegna þess að A upplifir fjarveruna vegna þess að B mætir ekki (eða nærveruna þegar B mætir).
Segjum sem svo að B hafi tafist því hann var að hjálpa gamalli konu yfir götuna, þá er B líka til í annarri einingu hjá þessari gömlu konu.
Með því að hafa heildarmynd yfir allar aðgerðir allra og staðsetningu á öllum tímum ætti að vera hægt að reikna út einingafjölda allra viðstaddra á þessari blessuðu jörð.
Þá væri maður líka guð sko! Starir þegjandi út í loftið
Iss piss, Stóri-Bróðir veit allt! Þetta ætti að vera léttur leikur...
Erum við þá að meðaltali ekki til?
Að meðaltali næstum því ekki til. Merkar upplýsingar um ýmislegt þessu tengt hafa komið fram undanfarna daga/vikur í ýmsum þráðum og er líklega að verða tímabært að birta samantekt í fjelagsriti Fer að hugsa um drög að fjelagsriti um meint tilvistarleysi nær allra Bagglýtinga, glúmsku, skilgreiningu þess að teljast vera til, Turing-próf, samsæriskenningar, gerfigreindarforrit, ritstjórn, 'samhliða alheima', Framsóknarflokkinn, tímavjelar og þá staðreynd að Myglar er til í augum einungis sumra hjer en aðrir hafa aldrei heyrt á hann minnst.
Einnig bendum vjer á eftirfarandi þráð:
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=1440
Með því að hafa heildarmynd yfir allar aðgerðir allra og staðsetningu á öllum tímum ætti að vera hægt að reikna út einingafjölda allra viðstaddra á þessari blessuðu jörð.
Þá væri maður líka guð sko! Starir þegjandi út í loftið
Sýnt hefur verið fram á að eigi er þetta (reyndar aðeins annað en mjög svipað og alveg hliðstætt) hægt. Það var m.a.s. þráður um þetta einhversstaðar en vjer munum eigi hvar. Velta má fyrir sjer hvað það segi um tilvist Guðs.
Sýnt hefur verið fram á að eigi er þetta (reyndar aðeins annað en mjög svipað og alveg hliðstætt) hægt. Það var m.a.s. þráður um þetta einhversstaðar en vjer munum eigi hvar.
Vjer fundum þráðinn: http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=3901 Líður skyndilega eins og gömlum sagnfræðingi