Afþví að það mætti halda að þú hafir verið að skrá þig á "Match making" vef.
[img] Hvað meinar þú með "Match making "ég er aðallega í íslenskunni.[/img]
Afþví að það mætti halda að þú hafir verið að skrá þig á "Match making" vef.
Hvar eru þessir vefir um eldspýtnagerð? Ég prófaði að gúgla þetta og fann ekkert nema eitthvað klám, ástarvellu og kynóðar kerlingar...
Frú 72hefur svo sannalega ekkert með klám ástarvellu eða kynóðar kerlingar að gera mér finnst nú samt fyndið að það sé hægt að velta sér uppúr þessu með frúna nú ég er frú og er ekki 72 kíló ég er ekki kynóð hvað gæti þetta þá verið. Kannski er ég bara 72.ára eða fædd 7 febrúar nú eða fædd árið 1972 við skulum hugsa um þetta aðeins meira.
...Skilur þetta einhver?
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið nei eiginlega ekki
Ég er nú bara að hjálpa þér við grunnatriðin.
Takk kærlega fyrir það og fyrirgefðu ef ég var yfirlætisleg það var ekki meiningin.
Togar aðeins í eyrun á Frúnni og klípur í nefið á henni
Hmmmmm.
Pff, ekki afsaka þig svona.
Láttu hana kjurt hættu að stríða henni kattarskömmin þín. Skammar kattarskömmina
Sendir lítinn púka inn um eyrað á Offara
Efnagreinir Frúnna
Pikkar í Furðuveru Hver er útkoman?
Hugsanlega er hjer á ferðinni 72. frúin í sögu Gestapó. Hefur þá komið hingað 71 frú á undan henni Starir þegjandi út í loftið.
Pikkar í Furðuveru Hver er útkoman?
Setur upp gleraugu og les af blaði
Alvarlegur skortur á notkun kommu, mikið skeytingarleysi gagnvart notkun greinarmerkja almennt. Hristir hausinn Það þarf að taka þessa í smá endurmenntun sýnist mér, netheimurinn hefur farið illa með hana.
Pikkar í Furðuveru Hver er útkoman?
Setur upp gleraugu og les af blaði
Alvarlegur skortur á notkun kommu, mikið skeytingarleysi gagnvart notkun greinarmerkja almennt. Hristir hausinn Það þarf að taka þessa í smá endurmenntun sýnist mér, netheimurinn hefur farið illa með hana.
Þetta er semsagt óviðunandi. Starir þegjandi út í loftið