Jæja, ég hef ákveðið að leggja orð í belg og stofna nýjan þráð um ekki neitt til að tilkynna kommu mína gestapó. Þar sem ég er nýliði hérna og algjörlega andlaus þessa stundina og get ekki komið með neitt frumlegt að segja, þá ætla ég bara að nefna það að ég sit einmitt núna á móti Þarfagreini og hef tekið eftir því að hann á engan saltstengur lengur.
Sendu kauða í búð! Hann þarf hvorteðer að byrgja sig upp af nasli fyrir annaðkvöld.
Velkominn nýliði Jerusalem. Vonandi ertu skárri en fíflið hann Jarmi.
Hvurslags gestgjafi er það að eiga ekki nóg af saltstöngum handa þér? Klórar sér í höfðinu
Hmm, kannski ég hefði átt að segja hvar við erum. Ég sit á móti honum í vinnunni, venjulega á hann eitthvað að snakki til að nasla á. En ég geri fúslega ráð fyrir því að Þarfagreinir tekur sig til og kaupir saltstengur handa öllum sínum gestum.
Heh, þó að ég hafi reykt salem í einhverju brjálæðiskasti á djamminu, þá átti þetta ekki að vera tilvísun í sígarrettu... Sjálfur er ég Camel maður en þegar maður er í neyð þá á maður til að leggjast lágt.
soldið síðan ég ákvað þetta nafn, minnir að það sé tilvísun í Transmetropolitan.
Drífðu þig nú í þessu, skrifaðu eitthvað skemmtilegt! Horfir starandi á Jerusalem og bíður eftir einhverju skemmtilegu Svona nú!
Öööö...
Oh, give me a clone
Of my own flesh and bone
With its Y-chromosome changed to X
And when it is grown
Then my own little clone
Will be of the opposite sex.
(Chorus)
Clone, clone of my own,
With your Y-Chromosome changed to X
And when I'm alone
With my own little clone
We will both think of nothing but sex.
Svífur yfir og hendir amerísku nammi í fólk, raulandi
♪ Flokkum og skilum, Blóðbankinn! ♪
Ný skora ég á Jerúsalem að segja oss fáfróðum hvað orðið Jerúsalem merkir, en verða ella fyrir háði og spotti, híi, bendingum og flissi.
Veltir fyrir sér hvort Offari sé Camel-maður/tröll
Nafnið er tilvísun í Transmetropolitan, Spider Jerusalem en einhver hér er víst búinn að taka þá mynd sem ég ætlaði mér. Þannig að ég held að ég verði Alien Love Messiah!
Býður öllum upp á heimabakaðar saltkringlur
Annars er Jerúsalem fallegt þorp í Ungverjalandi miðju, austan Transylvaníu. Mjög sætt alltsaman
Svífur yfir og hendir amerísku nammi í fólk, raulandi
♪ Flokkum og skilum, Blóðbankinn! ♪
Væri ekki nær að segja ♪Flokkum og skimum, Blóðbankinn♪
Þennan þráð var ég ekki búinn að sjá. Velkominn herra Jerusalem. Þú ert blár - og því svalur.
Já, ég gleymdi að segja velkominn. En Þarfi, blátt er svalt af því að það er samheiti yfir kalt og kalt er ekki gott. Jarðarlitur eins og brúnn er miklu betri sko. Enda merkilegustu menn Gestapó brúnir, ég, Skabbi Skrumari og Haraldur Austmann svo einhverjir séu nefndir.
Rauður er töff. Því verður ekki neitað.
Já velkominn... spurning hvort friðargæsluliði taki sig ekki til og færi þennan þráð yfir á Vér ánetjaðir... ekki að það skipti miklu máli.