Hittingur hjá Þarfa sætastaogbestasta greini í heimi, ég veit nú ekki alveg heimilisfangið en það kemur innan skamms.
Þetta verður á föstudagskvöldið, held ég.... Þarfi er ég að segja eitthverja vitleysu?
Mig vantar bara:
a) að vita hvar og hvenær
b) barnapíu
c) pening til að fá sér í glas
d) sannfæra Ívar um að hann eigi að keyra heim
Ljómar upp
En þarf það alltaf að vera staður þar sem maður verður að vera 20 ára og eldri?
Neinei! Ljómar upp
Það hafa verið hittingar heima hjá mér, allt að 5-6 gestapóar í einu. Ef ég er dugleg að taka til og sannfæra Ívar um að hleypa nokkrum vitleysingum inn, þá ætti þetta ekki að vera stórmál. Nema auðvitað fyrir þá sem þurfa að koma sér heim úr Hafnarfirðinum eftir að strætó hættir að ganga...
Fær Ívar ekki bara kaggann lánaðan heim og skutlar svo liðinu? Flissar
Ekki það að ég komi til með að komast Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Það er ekkert búið að plana neitt blóðugt.. svona svona þú kemur bara.
Hann gæti kannski gert það... eða þá að allt liðið tekur síðasta vagn heim, þá get ég líka farið snemma að sofa.
Það besta við þetta er auðvitað að ég þarf ekki að hafa áhyggjur af barnapössun.
Það versta er hins vegar að ég þarf að taka massamikið til...
Já eða ég held þetta bara, í herberginu mínu.
Roðnar niður í tær
Ég held samt að Þarfagreini langi roooosalega að halda eitthvað.
Já! Hey! Þarfi! Þarfi! Þarfi! Þarfi! Klappar Þarfa upp
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Ég er með stórt húsnæði já ... hví ekki?
Þetta er möguleiki - gæti komið nokkrum tugum fyrir hugsanlega.
Knúsar og kyssir Þarfa frá toppi til táar
Þú ert svo mikið bestastur!
Missir sig í gleðinni
Já þú kemur örugglega fleirum inn en ég get troðið í kotið mitt. Þá þarf ég heldur ekki að taka jafn mikið til, bara redda pössun...
Ég gæti hins vegar komið með kakópottinn og mallað kakó! Ljómar upp
Knúsar og kyssir Þarfa frá toppi til táar
Þú ert svo mikið bestastur!
Missir sig í gleðinni
Ég las þetta fyrst sem teppi - það hljómaði undarlega...
Getur ekki eytt innlegginu
Það líst mér vel á. Það er enginn hittingur án kakós. Ég get sjálfur kannski útvegað ... þarfagreiningu á því sem þarf til.
Gerist uppveðraður yfir þessari hugmynd
Horfir hikandi á Hexiu og fólkið á þræðinum
Reynir að halda munninum saman
Hexiaerekkiöndíraunheimum!
Grípur fyrir munnin og hleypur út
Ætlið þið þá að ljúga að mér aftur varðandi heimilisfangið.... senda mig aftur með leigubíl í yfirgefið hús í Keflavík í kanínubúningi að neðan og ber að ofan með bundið fyrir augu?
Það var ekkert fyndið!
Mér fannst það fyndið.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Sko!