Að veiða hval er engin smuga
hippar okkar ráðamenn buga.
[obbobbobb... leirburður er ekki vel liðinn á þessum þræði... Skabbi]
Ásökun Skrabba um leirburð mig hryggir,
Ætti að athuga hvort bílinn í kasko hann tryggir.
Grágrítið flissar eins og fíflið sem hann getur verið og roðnar
Enga andskotans vitleysu, haltu þig fjarri ef þú nennir ekki að læra þetta.
Jæja, hér er bara heilmikið að gerast . . .
Eru máske menn í grunninn myrkraverur?
Lánar Guð þeim ljósaperur?
Perufullur fór ég víst á flakk um páska.
Komst í margan klandursháska.
Háska lendir Hákon í og hrópar glaður:
,,Árfam höldum, ekkert þvaður!"
Þvaðra mjög og þagna sjaldan þingmennirnir,
bandvitlausir berserkirnir.
Berserkirnir berja fólk og börnin hræða.
Gáfumennin málin ræða.
Ræðst ég nú, af röggsemi, í ritun hendu.
Enda þó í einni bendu.
benda vil ég bjálfum á að bera kroppinn
ata út þar á eftir koppinn
Koppalognið Drottins dýrðar dásamlega
slævir sút & slær á trega.
Tregt mér gengur gáfnaljósa geip að skilja;
hvað er það sem þeir mér vilja?
vilji er allt sem þarf ef þarft að þjóna konum
(í staðinn þær svo strjúka honum)
„Honum“ skulu hirðar allir hiklaust lúta
Biskup jafnt sem baldin púta.
Púturnar þær einatt okkur eggin færa;
með börnum sínum svanga næra.
Næra lítil nádýr sig á nánum rauða.
Stutt er leið frá lífs til dauða.
Langt síðan þessir þrír hér fyrir ofan mættu...
Dauð er varla þrenning þessi þó ei mæti.
Komið - vakna gleðin gæti.
Gætilega grafa skal í gömlum þráðum.
Skabba hafa skal í ráðum.
Af einhverjum ástæðum hef ég notað mitt gríðarlega friðargæsluvald til að halda þessum þræði opnum.... það er engin tilviljun...
Ráðavilltir vita'ei mun á við og beðju.
Farðu nú og finndu keðju.
Keðjur fagrar finna má á felustöðum,
bestu skáldin bíða í röðum.
Röðum bíða rekkar í og ræða málin,
ekkert hik ef syngur sálin.