Ég ákvað að nota Ira Murks til að rita þessu orð, einfaldlega vegna þess að hann tekur í nefið og því ekki mark á honum takandi, er bara í þannig skapi núna. Já þetta er Glúmur og vil ég benda sjálfum mér á að koma oftar fram í eigin persónu svo eitthvað vitrænt komi hér fram annað slagið, því eins og þið (lesist ég) vitið þá er erfitt að halda utan um og spjalla vitrænt þegar ég kem fram sem margir aðskildir persónuleikar. Þetta er semsagt áskorun til mín (Glúms) að skrifa meira undir eigin nafni...Fær sér í nefið
p.s. mikið er ég ánægður með loðfílaritgerðina mína, þó ég segi sjálfur frá...
p.s. Bölverkur, hvað var í þessum einkapósti sem þú sendir mér?
Ég vissi þetta. Þið eruð öll Glúmur. Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Ég vissi þetta. Þið eruð öll Glúmur. Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Afhverju heldurðu það? Ekki er ég Glúmur (og Glúmur ekki ég).
Einkapósturinn innihjelt skipun stil yðar um að stofna ásamt öðrum Hagyrðingafjelag Íslands. Ertu með?
Ég veit ekki hvort ég er Glúmur Brestur í óstöðvandi grát
Það er eins og ég hef löngum sagt.
Öll erum við Glúmur. Starir þegjandi út í loftið
Einkapósturinn innihjelt skipun stil yðar um að stofna ásamt öðrum Hagyrðingafjelag Íslands. Ertu með?
Já takk.
Ég biðst velvirðingar að hafa ekki enn komið sem Glúmur, en ég þarf að hnýta nokkra lausa enda hér og þar, klára nokkra leiki og skrifa smá um júróvision sem annar einstaklingur og svo kem ég fram sem Glúmur.
...og jú, þið eruð öll ég (Glúmur).
Ég játa líka ég er Glúmur, vandamálið er að ég get ómögulega munað hver ég er.
Fyrst "ég" er byrjaður á annað borð er mál að linni að játa eina synd enn. Ég er Glúmur.
Bíður eftir Glúmi
Voðalega erum við orðnir margir hér Glúmarnir. Hér er kominn grundvöllur fyrir nýju stéttarfélagi.
Bíður eftir Glúmi
Mætir á svæðið
...Já þetta er Glúmur og vil ég benda sjálfum mér á að koma oftar fram í eigin persónu
Þessu erum vjer sammála, Glúmur er orðinn leiðinlega sjaldgæfur þó aðalloðfílsfjelagsritið hafi næstum náð að bæta það upp.
Ég vissi þetta. Þið eruð öll Glúmur. Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Eigi alveg öll. Oss er kunnugt um tvo gesti er eigi eru Glúmur. Því til viðbótar er síðan óvíst að öll ritstjórnin sje Glúmur.
Eru einhverjir aðrir á ferli hér?
Eru einhverjir aðrir á ferli hér?
Eigið þjer við hvort einhverjir aðrir en Glúmur sjeu hjer á ferli ?
Já þú ættir að vita það best sjálfur!
Nei, vjer vitum það eigi því vjer erum annar tveggja gesta (e.t.v. að ritstjórn undanskilinni) hjer á Gestapó er eigi eru Glúmur.
Það var gott ég sem hélt að ég væri eingöngu að tala við sjálfan mig hér. Blessaður þú þarna hinn maðurinn.