Manndómur ?
Enginn náungakærleikur
hjálpsemi
eða góðvild eftir í þér,
allavega mjög takmarkað.
Þú ert að hverfa í sjálfselsku dauðans,
Góða ferð
A!
Tóm.
Atóm?
Hjóm.
Fari volað það
fé
sem farið hefur
betur
má ef duga skal.
Skal
fara í
bað nú-
na
má ekki
koma skít
ugur í r
-úmið.
Rúm fyrir þig
til að sofa á
í hjarta mínu
Mínar kýr
einsog englar á innsoginu
eða jarmandi einhyrningar
gefa litla nyt.
nyt...
nytjastuldur
hér
er þjófur
á ferð
hann stelur
öllu steini
léttara
hann stelur sorg-
um mínum
hann stelur
hjarta mínu
hver er þjófur?
er það ég?
eða kannski þú?
þú? þú...
sem? ha?
enginn... fer.
hingað.
Ekki einu sinni,
eða tvisvar.
Ekki þrisvar ég.... aldrei.
...
. . . aftur.
Á ný.
Lítur stoltur á sitt fyrsta atómljóð
Ný-
lega
hefur sést til bleikra ísbjarna japlandi á
candy flossi
nálægt
fáskrúðsfirði..
Allt má kalla ljóð.
Ljóð um ljóð um ljóð
um ljóð um ljóð um ljóð
ljóð um ljóð um ljóð
um ljóð um ljóð um ljóð
um ljóð um ljóð.
Ljóð er þriggja stafa uml.
Uml og taut
Japl, jaml og fuður.
Urð og grjót
alrdei fór ég suður
því það nístir blákalt
inn
að hjarta mínu
það er gos
gas
OG ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ TROÐA SVONA SVAKALEGA MÖRGUM ORÐUM Í SÍÐUSTU LÍNUNA!
Lína
varð fimmtug í gær
ekki jafn sterk og í gamla daga
en hárið jafnrautt
brjóstin slöpp
gullpeningarnir búnir
Tommi og Anna búa skáhallt á móti
drekka te á sunnudögum, gægjast út um gardínurnar og pískra
hesturinn og apinn löngu dauðir.
Dauðinn...
...er víst bara stutt hlé frá lífinu...
...eða var það öfugt?
Ekkert bugar Eggert
hoppar yfir ívar
Öfugt,
er það svona samhverfa?
eða hvað?[/s]
Hvað
ef
orðin
yrðu
fleyg?
Hvert færu þau?
Myndi ég horfa
á eftir þeim
í orðlausri spurn?
Atómljóðin eru öll
órímuð, án forms og reglna.
Líkt og dagsins draumahöll
dragi okkur í undirdjúpin.
Undirdjúpum hugmyndaforræðis er farið að svipa til óeldaðrar eggjahræru.
Kannski er hún ekki einu sinni hrærð. Ég held hún sé kæst.
Svo sé ég augu og mjúkan gogg. Ég gleypi þetta allt og reyni að fá næsta mann til að smakka.
Nammi namm.