Þekki ég þig?
Heyrrðu...
Ar jú tokin tú mí?
þekki ég þig?
Þekkir þú mig?
Þekki ég nokkra þékka?
Þekki ég mig?
Þú ert eins og steinn,
steinnin er rauður eins og hvítt blóm.
Blómkvist horfir inn um gluggan
Í glugganum er blómlegur kvistur.
Kynlegur kvistur þetta.
Blómið blóðgað
blóðugt og rautt
Rauð er rósin
rjóð og fögur
með rósarblaðið
dautt.
Dautt.
Dautt og grafið.
Einsog vitund míns sjálfs.
Einsog virðing míns sjálfs.
Hver man?
Óminni?
Manst þú?
Það er víst málið að
drekka
bara nógu
andskoti mikið.
mikið andskoti dautt
ósmurðum sneiðum
kalla ég inn í rafsoðna nóttina
engum er gagn í þessu logni
stífpressuð meikar
þú spegilmynd þína
í þvottahúsglugganum
blindi stöðumælavörðurinn
á sér enga von
hrafnarnir tónar
á slökum raflínum
og smáfuglarnir kroppa augu trjánna
aldrei
hefi ég
atómljóð kveðið
og fer nú varla að byrja núna
svo ég lét mér nægja að enda þetta hér
en sé þá að (vegna lögunar orðanna) er hér frábært ljóð
- svo ég læt það standa
Horfir á viðbjóðinn með lotningu
eins og blogg eftir undarlegan akureyirng streyma orðin á þessum þræði, orðin sein til að mynda alvöruljóð eða sögu.
Þetta er ljóð
því ég segi
að þetta er ljóð
og enginn getur
ekki sagt að þetta
sé ekki ljóð vegna
þess að ég ákveð
það en ekki þið.
Þið vissuð
að nú sé þíða
með öllum umhleypingum
hvað á það að þýða?
enginn......................grætur.....verðbréfamarkaðinn.....þegar
...mörður.................spilar ..........bjálfa.......................núna
......lljóðið.............þetta .............erassgoti...................flott
.........endaeréglöngu ................búin...........................með
.............rosalega......................stórglæsilegafínt...........ljóð
Grípur um kvið
sér
leggst í fóstur
stellingu
á jörðina og veltist
um
emjandi af hlátri
enginn......................grætur.....verðbréfamarkaðinn.....þegar
...mörður.................spilar ..........bjálfa.......................núna
......lljóðið.............þetta .............erassgoti...................flott
.........endaeréglöngu ................búin...........................með
.............rosalega......................stórglæsilegafínt...........ljóð
dásamlegt.Gefur frá sér vellíðunarstunu
Opp jors
popp korn
norn sokk
kokk forn
Allerkomið kannn vísuna um vorið.
Mér mistókst
breytti rangt
gerði vitleysu
missti mig
tapaði mér
snappaði
stóð á orginu og skar í sundur málverk.
SÍMINN
Það er til þín, á ég að taka skilaboð?
dauðahvít
dregur fönnin
bjarta spjallþræði
niður kóbaltbláar hlíðar
Esjunnar