Skattar og skuldir
Til keisarans og kó
borgið honum öll
Öl um varir rennur
áramót
fyllerí
vesen
Vesenið kom eins og virkilega
fín stelpa í gleðskap
sem gjörsamlega tröllríður hjarta þínu í bókstaflegri merkingu
og svo þegar myrkrið loksins finnur þig svolítið seinna
átt ekkert
nema ógreidd
meðlög
Með lögum skal halda:
Áramótaáramót,
áramótsáramót.
Árar ára ára á á á Á
á áramótaármótaáramótum,
áramót um áramót við ármót.
Áramót er aðeins eitt örlítið good-bye við liðna tíma.
Tíma sem betur hefður verið nýttir ef maður væri aðeins klár,
klárlega þarf ég að gera eitthvað í þessu en,
endirinn virðist bara vera í Skagafirði og ekki er víst flogið til
tilverunnar á Akureyri og þar hef ég engan bíl til að,
aðeins komast inn í hlýjuna.
Meira að segja klifað atómljóð! Skýtur upp flugeld
Hlýjan er eins og hún er.
Eins og allt sem er er.
Kuldinn var eins og hann var.
Eins og allt sem var var.
Og tíminn gleypir tilfinningarnar
sem þú hélst að myndu aldrei deyja
Þú stendur einn á tindi
einmanaleikans
Einmanaleikarnir verða haldnir
í húsakynnum Kvenfélagsins Útkeyrð.
Kveðist verður á undir grátstafahætti,
keppt verður í fyrirslætti, sambandsslitum og ísáti.
Kannski mun hæstvirtur forsetisráðherra heiðra samkomuna
ef hann er ekki upptekinn í símanum við vini sína í útlöndum
sem eiga svo mikið fé að þeir geta keypt sér ástina,
nýorðna tvítuga og svona soldið sloj.
Ég laumast til þín í nótt,
ég læðist til þín.
Því ég þrái þig - ég verð að fá þig,
þú einn getur átt mig.
Ég verð að fá að finna fyrir þér,
kikna í hnjánum er þú snertir varir mínar.
Svo silkimjúkur undir fingurgómum mínum,
sætur og saltur undir tungubroddi mínum.
Svo góður - svo fallegur - og svo forboðinn.
Svo forboðinn en ég fæ ekki staðist þig.
Brátt verðum við saman,
hjarta mitt slær hraðar,
ég laumast til þín í nótt.
Hjarta mitt slær hraðar og hraðar,
saman og svo náin,
unaðar stunur.
Ég þrái þig svo - og svo mikið,
ég get ekki fengið nóg af þér.
Ég hitna af væntingu þess að finna fyrir þér,
innan í mér - ástin mín.
Ég laumast til þín í nótt,
ég læðist - þegar enginn sér.
Ég opna og kveiki hjá þér ljósið -
og ét þig.
Ástmatur minn.
Om, nom nom nom
breytt: -þakka þér hólið Regína, ég setti þetta inn sem félagsrit, enda ekki um auðugan garð að gresja hjá mér.
Om, nom nom nom
mon mon mon mo
Monní monní monní
Peningar
aurar
krónur
Veraldleg gæði
andleg auðlegð
Bráðum
verður mannkynið ekki
það sama og það var hér
áður fyrr
Halleljúa
og amen
amen segir séra Sigurður
og snýr sér við
hann er þreytulegur í dag
enda búinn að messa víða
svo þarf hann að jarða á laugardaginn
hann er ekki öfundsverður
hann séra Sigurður
nema fyrir það
að traust hans á Guði
er algjört
algert er miskunarleysi dauðans
stóru orðin hafa verið sögð
þó að enginn nema segjandinn
hafi heyrt þau
og þögn dauðans lagst yfir lík
þess saklausa sem veit ekki hversvegna
Hvers vegna eru hlutirnir ekki öðruvísi?
Væri ekki svo miklu auðveldara
ef allir væru fífl?
Að minnsta kosti þau...
Já, og hvers vegna get ég ekki
hætt að reyta á mér hárið þegar ég tala?
Sagað sundur
langur fundur
gamall hundur
lítill brundur
gamalt glundur
mikil undur
að kunna að ríma
Á hverjum degi höfum við kaffiteríu
Lúðrasveit grefur orsakasamhengi
Ákvörðunarréttur afleiðingargreiningar rútudagsfólksins
Bitti nú.
Bitti nú! - er brostin keðjan?
Bítur Fenrir af sér hlekki?
(Mig nú tefur atóm-eðjan -
aðeins Svafárs til ég þekki.)