Hérna er smá sem ég fattaði.
1^2 = 1 = 1
2^2 = 4 = 1 + 3
3^2 = 9 = 1 + 3 + 5
4^2 = 16 = 1 + 3 + 5 + 7
5^2 = 25 = 1 + 3 + 5 + 7 + 9
6^2 = 36 = 1 + 3 + 5 + 7 + 9 + 11
Örugglega einhver kínverji löngu búinn að fatta þetta en mér fannst þetta sniðugt.
Hér er á ferðinni vísir að lögmáli sem gæti leyst alheimsins myrkustu ráðgátur.
Mér finnst þetta óhugnarlegt. Það þarf augljóslega að ransaka þetta frekar.
Er þetta Poxxx reglan?
Gefur hún auknar líkur á Lottóvinningi?
Kaupir Lottómiða
Og ef einhver var að velta því fyrir sér, þá heldur runan áfram.
<Roðnar>
Já, NEI. Nú er ég skelkaður.
Skelfur og nötrar og hvítnar
Jáhá og þetta er í rauninni náskylt þessu
1² = 1 = 1
2² = 4 = 1² + 1 + 2
3² = 9 = 2² + 2 + 3
4² = 16 = 3² + 3 + 4
...
24² = 576 = 23² + 23 + 24
25² = 625 = 24² + 24 + 25
...
k² = (k-1)² + (k-1) + k
Hér er um skýr panglossísk fermatsvensl að ræða! Þetta er uppgvötun aldanna. Út frá þessu samhengi má fylla upp í skammtafræðilegar gloppur í heilmyndunarkenningum um transversatílísk skynhrifsvensl úr samvitund alheimsins og vensl þess milli stakskenndra vitsmunavera án tillits til rauntímarúmsfjarlægðar!
Dr. Helgi Pjeturs myndi hoppa hæð kassíópeískrar Mundflænu í æsingi ef hann vissi af þessu!
Fer að reikna kosmíska vektorsalgórytma upp úr lögmálunum til að leggja að grunn að skilvirkari stjörnusambandsstövðum
Fyrst við erum að þessu, hér er einn pascal-þríhyrningur.
1
1 1
1 2 1
1 3 3 1
1 4 6 4 1
1 5 10 10 5 1
1 6 15 20 15 6 1
1 7 21 35 35 21 7 1
1 8 28 56 70 56 28 8 1
Þetta er eins og hálfur Pascal þríhyrningur á hlið