Næstum því? Haraldar saga? H-ið er á sínum stað (og reyndar fleiri bókstafir) en ...
Harðar saga og Hólmverja heitir sagan. Hörður var Grímkelsson.
Mikið rétt.
Hm. Það var reyndar svona 75% rétt hjá Ólafi, þannig að ég myndi gefa honum spurningaréttinn, en kannski vill Bölverkur spyrja næst?
Æi! Svei nafnaruglingnum. Við hvurju er sosum að búast þegar gamalmenni rifja upp fornar sögur um miðjar nætur. Þarna sjáið þið nú best hvernig efni sagnanna getur svignað þegar þær flæða á milli kynslóðanna.
Næst er spurt um annað innbrot. Kvenmaður er ein heima ásamt húsdýrum staðarins og einum fanga. Innbrotsmenn takast á við hana en hún reynist mjög harðsnúin og klórar djúp sár með nöglunum. Þeir koma loks á hana höggi eftir að hún rennur til í blóði og slíta þá af henni útlim. Eftir að hafa murkað úr henni lífið ræna þeir svo staðinn og brenna, en leysa fangann.
heyrir ekki neitt því hún er að fletta í Bjólfskviðu
Næstum því? Bjólfs kviða?
Vísbending:
Þessi framsetning var dulítið villandi. Innbrotsmennirnir eru sumsé aðalsöguhetjurnar en kvenmaðurinn hið versta flagð.
Svo finnst ykkur við tígrisdýrin vera illkvittin...
Vísbending: Sögusvið þessarar sögu er að verulegu leyti sömu slóðir og sögusvið síðustu gátu.
Mér datt gísla í hug, en það er örugglega ruglingur þegar Þ-eitthvað kellíngin lamdi Eyjólf gráa.
Vísbending: Þessi saga er þekktust fyrir þau afrek sem aðalsöguhetjurnar vinna með kvenfólki.
Þarf nú að rifja upp Kjalnesinga sögu, en gizka á hana.
Og það var rétt! (Bósa saga og Herrauðs, til að halda öllu til haga.)
Það voru aðalsöguhetjurnar Bósi og Herrauður sem þarna sóttu að Kolfrostu, móður Háreks konungs. Hún var “mögnuð af blótskap” og gætti hofs guðsins Jómala ásamt ýmsum kvikindum en þeir höfðu sigur með harðfylgi og kænskubrögðum og frelsuðu Hleiði konungsdóttur.
Sögusvið Bósa sögu er að mestu leyti Gautlönd en þessi viðureign fór þó fram í Bjarmalandi. Sagan er einkum þekkt af óvenjulega bersöglum lýsingum af hvílubrögðum Bósa og þriggja bændadætra.
Mosa á réttinn.
Takk, Ólafur. Reyndar er það rétt hjá Lamadýrinu, Bósa saga og Herrauðs er fornaldarsaga. Hins vegar er hún flestum íslendingum vel kunnug og jafnvel þjóðinni kær, þó ekki eins kær og t.d. Njála.
En höldum áfram.
Í hvaða íslendingasögu takast hetjurnar á við illmenni og þjóf sem býr ásamt tuttugu svörtum, ákaflega stórum köttum, mjög trylltum?
STOPP! STOPP!
Bósa saga og Herrauðs er EKKI Íslendinga saga, heldur ein af fornaldarsögum Norðurlanda.
Spyrjið rétt.
Næsta svar er hins vegar:
Vatnsdæla saga
Reyndar hef ég gengið með reglubreytingu í maganum í nokkra daga, þ.e. frá því að ég sá spurningu Ólafs og fannst hún ögn ó-Íslendingasöguleg.
Sumsé: Ný regla!
Spyrja má úr fornaldarsögum Norðurlanda, biskupasögum, Íslendingaþáttum &c. Einnig má spyrja úr öðru tengdu fornbókmenntum, t.d. hver lék Eyjólf gráa í Útlaganum o.þ.h.
Spurningar af því tagi mega þó ekki verða ráðandi, heldur eru hugsaðar til að gera leikinn aðgengilegri fyrir yngra fólk.
Dettur í'ða á unglingamóti framsóknarflokksins