Já, og það einni af þeim þekktari.
Já, þetta gengur ótrúlega hægt. Reyndar vitum vjer eigi hvort þetta er þekkt eður ei en sagan er mjög þekkt. Að öðru leyti erum vjer tregir til að gefa vísbendingar að svo stöddu en nefnum samt að áður hefur verið spurt úr sögunni hjer.
EGLA!
Dóttir Arnfinns jarls er að tala við Egil.
Loksins, loksins ! Vjer gefum rjett fyrir þetta þó líka hafi verið spurt um tilefnið en það er nánast augljóst af kveðskap jarlsdóttur.
Pamela á spurnarrjettinn.
Leggja þeir þá til hans með spjótum svo að út falla iðrin en hann sveipar að sér iðrunum og skyrtunni og bindur að fyrir neðan með reipinu.
Hver berst svo hetjulega fyrir lífi sínu?
Súrmjólk er ekki G-mjólk - þó G. Súrs sé frægur, en fallvötnin falla sjálfsagt einhverstaðar þó vatn renni víða af fjalli
Ég er handviss um að svarið er Gísli Súrsson. Viltu ekki skjóta næst, Albert?
Ég biðst afsökunar á fjarveru minni en jú þetta var Gísli Súrsson.
Þegi þú Þórður, þögn hæfir heimskum best
Þórður skögultönn.
Þórður skögultönn.
þessi leikur á nú betra skilið en að deyja
þó að ég geti nú ekkert í honum
Hvað segið þér, Albert? Hafði Pamela rétt, og hver fær réttinn, ef svo er?
Verst að Albert sést eiginlega ekki lengur hér.