Þetta er afar einfaldur leikur, rétthafi lýsir atriði (svipað og í kvikmyndagetraunaleik Illa apans) úr Íslendingasögu að eigin vali, og keppendur keppast um að finna rétta sögu og hlutaðeigandi persónur.
Dæmi:
Spurning: Maður veitir konu sinni löðrung, hún segist ætla að muna honum hann.
Svar: Gunnar og Hallgerður í Brennu-Njáls sögu.
Sá sem getur upp á réttu svari hlýtur réttinn til að spyrja næstu spurningar.
Hér er fyrsta spurningin:
Tveir menn ganga til einvígis. Eftir að hetjan hefur fellt andstæðing sinn gengur hún að blótnautinu og leikur það heldur illa.
Spurningin er fjórþætt: hver er sagan, hverjir öttu kappi, hvernig felldi hetjan mótherjan og hvað gerði hetjan við blótnautið?
_______
Uppfært!
Einnig má spyrja úr fornaldarsögum Norðurlanda, biskupasögum, Íslendingaþáttum &c. Einnig má spyrja úr öðru tengdu fornbókmenntum, t.d. hver lék Eyjólf gráa í Útlaganum o.þ.h.
Þær spurningar mega þó ekki verða ráðandi og eru meira hugsaðar til upplyftingar af og til .
Máske dræm viðbrögð við þessum leik séu í einhverju samhengi við þessa frétt falsmiðlanna?
Ég hef bara eina sögu lesið og man ekkert um hvað hún var. Man bara að hún gerðist á vestfjörðum og heitir Gísla Saga Súrsonar. Fannst 15 ára gömlum þetta vera ömurleg lesning svo að núna á ég enn eftir að setjast niður með almennilega íslendingasögu. Brestur í óstöðvandi grát hugmyndin að leiknum er frábær en vonandi finnast þátttakendur.
Þetta verður "einka"-leikur 4-6 mans held ég.
Hvaða hvaða. Það eru akkúrat svona viðhorf sem valda þeim áhyggjum sem koma fram í fréttinni, Jarmi.
En, þessi spuring kemur úr uppáhaldssögu allra 16 ára unglingsstráka, áður en Haraldur Pottari fór að fikta við seyð, Egils sögu Skallagrímssonar. Eða Gilzneggers eins og hann héti í dag ef mark er takandi á einhverju bloggi sem ég las. Hristir höfuðið
Þetta ætti að koma einhverjum keppanda á sporið.
Frábær hugmynd hjá þér herra Zimmermann að koma með þennan leik. Ég vona að hann eigi eftir að verða langlífur, en verð jafnframt að játa að ég kann ekki eða man ekki svarið við þessari fyrstu spurningu.
Dustar rykið af Íslendingasögunum
Æi, ég veit þrjá fjórðu af svarinu, hverjir öttu kappi...
Legg hausinn í bleyti og lít inn aftur ef það rifjast upp.
Þetta kalla ég leik.
Tveir menn ganga til einvígis. Eftir að hetjan hefur fellt andstæðing sinn gengur hún að blótnautinu og leikur það heldur illa.
Spurningin er fjórþætt: hver er sagan, hverjir öttu kappi, hvernig felldi hetjan mótherjan og hvað gerði hetjan við blótnautið?
Eins og áður kom fram er sagan Egils saga Skallagrímssonar. Egill og Atli (kallaður hinn skammi) öttu kappi hér. Egill felldi Atla með því að bita í sundur í honum barkann. Svo gekk hann til nautsins greip í höfuð nautsins báðum hendum (annarri hendi í hornið og hinni í granarnar) og snaraði svo í sundur hálsbeinið. Svo kvað hann vísu.
Auðvitað! Sannarlega! Hárrétt og fagurt! Má þá biðja (þó ekki í þríriti) betri helming forsetaembættisins að varpa fram gátu?
Endilega. Leyfdu mér aðeins að láta skemmtilegt atriði detta mér í hug. Þau eru bara svo mörg ...
Þetta er úrvalsþráður. Verst að það er talsvert síðan ég las þessar sögur, og það var ekki bara vegna þess að ég þurfti að lesa þær heldur hafði ég gaman af. Jafnöldrum og kunningjum til mikillar furðu.
Ég verð að líta við hérna og sjá hvað ég get. Ljómar upp
Skál fyrir þér Gúnðer! xT
Jæja þá.
Um er að ræða haugbrot.
Söguhetjan verður með í fylgð manna sem ætla að brjóta haug. Fyrst gengur þeim illa. Þó að þeir vinni í allan dag og komist um kveldið niður að viðum, um morguninn eftir er haugurinn heill sem áður. Þeir koma enga leið fyrr en hetjan fær aðstoð ókunnugs manns sem virðist búa í nágrenni. Björn segist sá ókunni heita, og hann kennir hetjuna þó að hetjan þekki Björn ekki. Björn gefur hetjunni sverð eitt. Nú gengur þeim betur. Sverðinu er skotið í haugsbrotið í lok vinnudags, og haugurinn grær ekki á sama dularfullan hátt og áður. Eftir fjóra daga ná þeir alla leið og ljúka frá hurðu. Hetjan ein þorir að ganga í hauginn, og þar inni tekst hann á við sérlega grimman og kvæðinn haugbúa. Að lokum hefur hann sigur. Af grípunum kýs hann sér hring, sverð og hjálm. Svo rennur upp fyrir þeim hver sá Björn hafi verið.
Spurningin er þrefald:
Í hvaða íslendingasögu gerast ofanlýstir atburðir? Hvað heitir haugbúinn skáldmælti? Hver reynist Björn vera eftir allt saman?
Gerast þessir atburðir í Norvegi?
Er þetta ekki úr Fóstbræðrasögu og hetjan er Þorgeir Hávarsson?
Þetta er ekki úr Fóstrbrœðra sögu, nei.
Þessir atburðir gerast austur í Gautlandi. Það er svo fátt um haugbrot heima.
Úff. Ég er engu nær. Pass, eða frekari vísbendingar, máske?
Ekki segja pass!
Vísbending nr. 1: þó að atburðirnir ofanlýstu gerist í Gautlandi, er sagan í heild tengd firði í nágrenni Reykjavíkur. Samt hafa nútímareykjvíkingar mjög sjáldan haft erindi á þessum firði undanfarna árin.
Þetta mun vera úr Haraldar sögu og Hólmverja. Atriðið hefur raunar verið notað nokkuð stílfært í myndunum um Jónas Indíafara. Haugbúinn illi sem brotist var inn hjá hét Sóti en talið var að "Björn" hefði villt á sér heimildir og í raun verið Óðinn sjálfur. Þetta hefur þó aldrei fengist staðfest.