Pækilslegið er það potti í
panta fitugt hrossakjetið
saltið góða sýgur inní
og svo verður sko étið
Étið hef ég Jesú -inn
Jósef og Maríu.
Þannig fór um þessi skinn
þau fóru o´ní maga minn.
Það var kominn tími á að einhver kæmi með stikluvik
Minn er orðinn magi tómur,
mat ég verð að finna.
Þrútin augu, þurr er gómur
þessu verður að linna.
linna hungri leiðu má
líttu hérna ráð nú sjá
skerðu af þér eina tá
etast skal’ún köld og hrá
Hrá er vistin víst um sinn
verður allt að klessu
Ekki ættirðu maður minn
að giftast massaðri lessu
Lessu einni lá ég hjá,
lítið var það gaman.
Hún vildi það ekki aftan frá
og eigi heldur að framan.
fram andans menn frá Ísalandi
er yrkja þjóðir kúta í
þótt öngvu einstök vísa grandi
er óþarfi að lúta því
Því er ég á þessu skeri að þræl' og púla?
Pyttinn oní farðu fúla
flotna gamla timbursúla!
Timbursúla, timburmenn.
Timburkassinn fúni.
Sníður viðinn, smíðar enn,
snikkarinn gamli lúni.
Lúni einn með laskað geð
labbar - má ei keyra.
Töfluboxið tóma með
til að kaupa meira.
Meira vill en minna fær.
Margur verður af aurum auli.
Menn heimt' ekki núna heldur í gær.
Hættum nú þessu vísnabauli.
Vísnabauli vill hann að
vísna-aular hætti.
Með þreyturauli þó hann kvað
þannig gaul við bætti.
Bætti sig í boðhlaupi Zaiwar
og böggaði mær eina: "Æ var
ekki gaman í gær
góða komdu hér nær
hvort ertu Sen eða Snævarr?"
Snævarr brosti Árninn breitt
Brást ei vonum landans.
Fréttasnápur komst í feitt
Fann rót leka vandans.
Vandans gand með brugðinn brand
blandast fjandar við og grand.
Við andans land þeir stýra í strand
standa í klandri og sökkva í sand.
sand um flandrar frakkur krakki
feitur hlandi þveitir
Andra handar hlikkjast pakki
heitur randaveitir
Mitt er að yrkja annarra að skilja mætti svo sem segja, en þar sem hér er kannski seilst helst til langt í líkingum er líklega rétt að gjöra ögn grein fyrir kynlegum gjörningnum
Gullið streymir gaurnum frá
gjarnan styður eigin hönd
í skafl þá rendur rita má
og reyndar líka þurra strönd
Andri stendur á strönd
straumar þveitast heitir
heldur lóknum í hönd
hann er randaveitir