Afa sem fór á honum Rauð
eitthvað suður á bæi
sárvantaði sykur og brauð
sitt af hvoru tagi.
tagi sínu sinnir hver
svo mun gjarnan vera
eigin vegi brölta ber
best er það að gera
Gera það og gera hitt
gera eitt og annað
frá allri villu klárt og kvitt
en kostur sé það bannað.
Bannað er að búsa því
brennsi gerir yður skrítinn.
Hvurnin er það, bera bý
baggalýtinginn skoplítinn?
skoplítinn ég skoða mann
skelfilega smáan
ekki sá við kerskni kann
kannski stíg á hann
þetta var víst ég
skoplítinn jeg skoða mann
skelfilega smáan
ekki sá við kerskni kann
kannski stíg jeg á hann
stubbur mjög í geði grár
gauð og fjandans herfa
ef hann meira yrði smár
eflaust mindi hverfa
hverfa dagar hverfa ár
hverfa mínar stundir
hverfa raunir hverfa tár
hverfur sólin undir
Undir alla braut hún sig
öðrum konum fremur
Jörðuð verður Jóhanna Sig.
áður en hennar tími kemur
Kemur kuldinn alltof fljótt?
Kaldur vetur.
Get ég boðið góða nótt?
Gettu betur.
Sieg Heil? Hvaðan kom það og af hverju?
Betur hefði heima setið
árans happadís
Eins og er hún getur étið
það sem úti frýs
Þetta var víst mín vísa:
Betur hefði heima setið
árans happadís
Eins og er hún getur étið
það sem úti frýs
Frýs á heiðum og farvindar strjúka.
fer í hendur og fætur kal.
Án kuldagalla við Kárahnjúka
eru karlagrey frá Portúgal.
Portúgal þeir teyga trist
og trúlega einnig landa.
Á Íslandi er vond mjög vist
með vosbúð allra handa.
AH! Ég var brotinu of seinn með þessa:
Portúgal í Portúdal
er portfólks val um nætur.
Portvínshalir ports með tal
portsins fala dætur.
Það er því vísa Lyru sem gildir.
Handa ykkur hef ég gjöf;
hamborgara og franskar.
Við fætur nema frakkalöf
og falla að höndum hanskar.
Hanskar falla höndum AÐ
heimskingjar Á prófum.
Fellur stundum flís VIÐ tað
ég féll UM par af glófum.
Glófum klæðumst, gerist kalt.
Gætt´ að hálku á vegi.
Á veginn sett er mikið salt.
Svo líkist pækils-legi.