Vjer fengum póst um svipað leyti og grunar oss að sendandinn sje sá sami.
Sendandinn sendi oss póst en eyddi honum hjá sjer áður en vjer lásum hann. Þrátt fyrir það sjást viðkomandi skilaboð (þ.e. nafn sendanda/móttakanda og 'subject') bæði hjá oss og sendanda. Hvorugur getur hins vegar lesið skilaboðin og hverfa þau eigi fyrir fullt og allt hjá oss og sendanda fyrr en vjer eyðum þeim - sendandinn getur eigi eytt þeim þannig að þau hverfi alveg heldur einungis eytt þeim þannig að eigi sje hægt að lesa innihald þeirra.
Við Isak sammæltumst um að þetta væri líklegasta skýringin á þessu dularfulla pósthvarfsmáli.
Ég er bara svo ótrúlega forvitin að mig langar afar mikið að vita hvað innihaldið var Rífur í hár sitt
Já... hann hefur verið eitthvað drukkinn þegar hann sendi þetta á okkur öll og hætt síðan við þegar rann af honum... jæja hvað um það... lítið við því að segja...
Telur að Skabbi sé eitthvað viðriðinn máliðHvar varst þú umrætt kvöld?
Ég var ekki á Gestapó... því tókst mér ekki að lesa það áður en það var strokað út... annars þekki ég mann sem þekkir mann og hann fékk slíkt bréf og veit ég því hvað stóð í því... ég reikna með að það boð standi ekki lengur þar sem nú hefur þetta boð verið strokað út...
Horfir grunsamlega á Skabba, en finnst ásakanirnar hjá offara einnig grunsamlegar
Kanski offari og Skabbi séu báðir Glúmur.Klórar sér í höfðinu
Hum Grunsamlegur Segist ekki hafa verið á staðnum, hum, en samt veistu hvað stóð í umræddu bréfi, hum Telur að Skabbi sé ekki eins og hann vill vera láta Hringir í Holmes.
Glúmskabbari ?
Reyndar er augljóst að eigi skiptir máli hvern undanfarandi gesta vjer spyrjum álits á hinum ýmsu nöfnum er oss detta í hug. Þeir eru allir Glúmur eins og kunnugt er.
Tilgátur varðandi Stóra einkapóstsmálið eru nokkrar:
1) Að eitthvað sé að póstkerfinu þegar kemur að viðkomandi Gestapóa.
2) Að viðkomandi Gestapói hafi eytt póstinum vegna minnkandi eða aukinnar ölvunar umrætt kvöld.
3) Að viðkomandi Gestapói hafi eytt póstinum til að hrekkja okkur.
4) Að viðkomandi Gestapói sé Glúmur og hafi sent á alteralteregó sín og þau séu að blekkja okkur (þar á meðal ég).
5) Sama og 4 nema að enginn póstur var sendur yfir höfuð.
6) Að viðkomandi Gestapói sé að auki viðriðinn morðið á JFK.
Enter hefur verið settur í málið.
7) Ég tel að um sé að ræða miltisbrand, leyniþjónustan (sem er þá væntanlega svo leynileg að enginn veit um hana) hefur þá örugglega fundið miltisbrandinn og eytt öllum bréfunum sem innihéldu þennan vírus.
Tilgátur varðandi Stóra einkapóstsmálið eru nokkrar:
1) Að eitthvað sé að póstkerfinu þegar kemur að viðkomandi Gestapóa.
2) Að viðkomandi Gestapói hafi eytt póstinum vegna minnkandi eða aukinnar ölvunar umrætt kvöld.
3) Að viðkomandi Gestapói hafi eytt póstinum til að hrekkja okkur.
4) Að viðkomandi Gestapói sé Glúmur og hafi sent á alteralteregó sín og þau séu að blekkja okkur (þar á meðal ég).
5) Sama og 4 nema að enginn póstur var sendur yfir höfuð.
6) Að viðkomandi Gestapói sé að auki viðriðinn morðið á JFK.
Enter hefur verið settur í málið.
Eigi er um að ræða (1), líkt og fram kemur framar í þræðinum gerðum vjer lítilsháttar tilraunir er framkölluðu vandamál þetta. Það gerðist án þess að viðkomandi Gestapói kæmi við sögu.
(2) og (3) koma til greina og (4) er mjög líklegt, sjerstaklega í ljósi þess að vjer fengum svona póst og vjer erum í hópi þeirra örfáu gesta (teljandi á fingrum annarrar handar) er eigi eru Glúmur. (5) finnst oss ólíklegt.
Svo er ein möguleg skýring til viðbótar: Að umræddur Gestapói hafi einfaldlega viljað hreinsa til í sent-pósthólfi sínu strax að loknum sendingum til margra Gestapóa og eigi gert sjer grein fyrir að það hindraði að móttakendur gætu lesið skeytin.
Einnig kann að vera um að ræða allsherjar samsæri og að enginn hafi fengið svona póst nema vjer. Það samræmist a.m.k. tilgátu (4).
Ég verð að vera sammála sjálfum mér um að mín skýring sé sú eina rétta, þ.e. skýring númer 7 ef fólk vill vera að númera þetta. Númerar skýringuna sína
Ég vill meina að hér séu óvinir ríkisins á ferð, og því skulum við tafarlaust blása til tilgangslauss stríðs, við þá alla nú þegar.
Farið hefur verið í stríð af minna tilefni... ef ykkur vantar stríðshvetjandi Ákavíti, þá hafiði samband...