Ég var á svæðinu... hafði nóg að lesa af því sem hafði bæst við frá síðustu heimsókn á undan... er það rétt sem ég sá að Limbri væri farinn?
Ef svo er... er þá nokkur tilgangur með því að mæta hér lengur?
Hvar í heiladauðum öpum sástu það? Gjörsamlega fer af tauginni
Síðasta félagsrit hans gefur það sterklega til kynna...
Það fer nú eftir því hver gaurinn er að mínu mati... að þú þykist ekki þekkja Limbra finnst mér skrítið...
Já ókey, ég veit svona aðeins hver það er en ég hef ekkert séð hann að viti eða talað neitt við hann, kannski maður reyni að bæta úr því við tækifæri... Það er hins vegar annað mál ef Nornin myndi fara. Verður allt í einu fölur
Flissar
Þessir gömlu hætta aldrei.
Veit ekki betur en að þetta sé á fagmáli kallað að fara í afvötnun. Það er ekki hægt að hætta. Það er ekki geranlegt.
Held að Skabbi sjálfur taki undir það... Starir þegjandi út í loftið
Ég var á svæðinu... hafði nóg að lesa af því sem hafði bæst við frá síðustu heimsókn á undan... er það rétt sem ég sá að Limbri væri farinn?
Ef svo er... er þá nokkur tilgangur með því að mæta hér lengur?
Ísköld egg katanasverðs kemur út úr myrkrinu og staðnæmist fyrir framan barkakýli Skabba
Þú ferð hvergi kæri vin. Við megum ekki við að glata þér líka.
Hlebbi hrakti Limbra burt á sínum tíma. Við verðum að vona að hann sjái að sér margblessaður maðurinn.
Bætir óvinum Skabba (ef einhverjir eru - sem er ríkisleyndarmál) á listann yfir óvini ríkisins til að minnka líkur á að hann fari
Það tilkynnist hjer með opinberlega að gæsla í og við forsetahöllina hefur verið aukin til að minnka líkurnar á að oss verði rænt af óvinum ríkisins. Mikill tími hefur hins vegar farið hjá oss í baráttu gegn þeim undanfarið. Illar tungur (eflaust á vegum óvina ríkisins) hafa reyndar reynt að grafa undan trúverðugleika ríkisstjórnar Baggalútíu með því breiða út þann óhróður að um sje að kenna óvenjulegu annríki í raunheimum en það eru helberar lygar og ósannindi. Eigi eru svokallaðir raunheimar til.
Það skal tekið fram að Vladimir fer með rétt mál... raunheimar eru ekki til, nema í hugarheimi sjúkra einstaklinga...
Hvar eru þessir raunheimar?
Raunheimar eru norðan við og ofurlítið neðar en Glaðheimar. Göturnar skerast ekki.
Til frekari glöggvunar og til að hindra hugsanleg vonbrigði þeirra er þetta lesa og er hefja í framhaldi af því e.t.v. umfangsmikla leit er rjett að geta þess að Glaðheimar eiga það sameiginlegt með raunheimum að vera eigi til. Sama gildir um t.d. Álfheima.
En Laumupúkaheimar?
Sussar í Texa Ef fólk veit ekki af þeim, þá á það ekki að vita af þeim!
Heyrst hefur af glaðheimum á horni séstvallagötu og ervallagötu.
Þenur nýja rafmagnsgítarinn sinn í 600watta magnaranum
♪♪In the white room, with black curtans, near the station♪♪
Tekur ekki efir neinu