ég heiti sphinxx ég hef gaman af leikjum og skrifum svona endrum og sinnum
ég er mest í tölvunni þegar ég er í vinnunni því einkatölvan liggur lömuð heima í skáp og bíður lækningar með nýju ári.
ég er kurteis, blíður og vel kassavanur.
vil bæta við að ég sá hvergi skrifað um kynningu og biðst forláts á að ryðjast bara svona inn.Glottir eins og fífl
Hæ.
Bara smá ábending: þér verður mjög vel tekið ef þú byrjar setningar á stórum staf og endar þær á réttu greinarmerki. Annars vertu bara velkominn!
Blessaður ég gerði það víst líka. Þannig tóks mér að sleppa við busun.
Ég á örugglega eftir að fá einhverjar skammir því ég er vanur að skrifa allt í belg og biðu. Bið ykkur um að sýna mér þolinmæði og kannski segja mér ef ég geri eitthvað sem er ekki ofvel liðið.
Klappar sphinxx
Þú ert ágætur.
Ég hveð í bili nema garmurinn minn komist í lag.
viku vakta frí....
Dýrð sé Guðum og öllum þeirra englum og hjálparhellum.
Vekominn Slær upp svakaveislu
Klappar saman lófunum
Má ég eig'ann?
Brosir hringinn og skoðar Sphinxxinn í krók og kring
Alveg ótrúlega mörg líf síðan ég hef séð alvöru Sphinx Ljómar upp
Vertu hjartanlega velkomið, vel skrifandi minnismerkið þitt.
Togar nokkrum sinnum í ermina á Hakuchi Þú átt að heita konungur hérna... má ég eig'ann?
Brosir voða sætt
Kippir önuglega til hendinni
Já já. Þú mátt svosum eiga hann býst ég við. Gegn því skilyrði að þú gefur honum að borða reglulega veitir honum einhvern samastað.
Þú mátt ekki nota hann í galdraseiði.
Hoppar upp og niður nokkrum sinnum, dustar ósýnilegt ryk af hægri öxl Hakuchi. Stillir sig Ég lofa brosir hringinn
Sphinxx.... Sphhhiiiinnnnxxxxxxxx... komdu hérna Stendur kyrr og spáir Hmm... hvað ætli þeir borði? Galdrar fram hangikjötslæri og veifar því
Ég á örugglega eftir að fá einhverjar skammir því ég er vanur að skrifa allt í belg og biðu. Bið ykkur um að sýna mér þolinmæði og kannski segja mér ef ég geri eitthvað sem er ekki ofvel liðið.
Þú ert nú meira krúttið! Velkominn og ég skal passa þig, þar sem þú ert krútt.
Horfir með efasemdum á sphinxxx
Humm, við sjáum til...
Potar í aulann Hehemm...
Ég má passann!