Jesú Kriss á jólum fæddist
jötugarminn í var settur.
Múlasni að Maju hæddist
meðan Jósef reykti rettur.
Stjörnu bjarta störðu á hirðar
stóð á mörgum vitringunum.
Englasöngvar utan kyrrðar
ennþá gaulið himneskt munum.
Heródes með huga dimman
hugðist losa oss við vandann.
Sendiboða sendi grimman
samning gerði hann við fjandann.
En Maja og Jobbi léku á lagsa
líkt og væri ´ann bjánakálfur.
Til Egypto með barnið bagsa
bjargað gat sér ekki sjálfur.
Efaraddir upp þá vakna
um guðlegt eðli stráksa þessa
Þráðurinn vill þessi upp rakna
þrotlaus eins og útvarpsmessa.
Óþarft hefði upphlaup þetta
ef að hann gat sig sjálfan varið.
Voru hjónin vond að pretta?
Var því þá kannski þannig farið?
Ætli Vauni sé búinn að lesa þetta? Óttast afleiðingarnar
Vantrúarmenn sem gera ekki annað en að verja afstöðu sína (jafnvel óáreittir) eru ögn eins og aggressívir hómófóbar sem óttast ekkert meira en að upp komist um leynda hrifningu þeirra á Nonna í vinnunni.
Gleðilega Kristsmessu!
Þú segir nokkuð. Er það mögulegt að Sússi og lærisveinagengið hafi verið --------?
Klórar sér í höfðinu - sér ekki tenginguna
Hneikslast yfir orðum Dordiguls þó sérstaklega yfir því orði sem hann sagði ekkiHugsar svo og spyr Voru þeir ekki allir síðhærðir og í kjól?
Klórar sér í höfðinu - sér ekki tenginguna
.....skotið í "Nonna". Svo ég klári nú settninguna og skýri tengingu.
Sér að Dordingull hefur ekki áttað sig á að með innleggi sínu hafi höfuðklórari verið að hneykslast á innleggi áðurnefnds Dordinguls.
Ætli sé komin tími til að loka þessum þræði Skammast sín fyrir að taka þátt í umræðunni
Sér að Dordingull hefur ekki áttað sig á að með innleggi sínu hafi höfuðklórari verið að hneykslast á innleggi áðurnefnds Dordinguls.
Þó Köngulóarapi muni vera þá er fattarinn ekki svona stuttur. Kaus einfaldlega að hunsa þann hluta snúa hlutunum við og gera at. Brosir út að eyrum
Brosir út að eyrum.
Skál fyrir skoðanafrelsi!
xT
Hmm, ertu með númerið hjá honum Nonna?
Hlær ógurlega
... nei svona í alvöru... ertu með númerið?
Ætli sé komin tími til að loka þessum þræði Skammast sín fyrir að taka þátt í umræðunni
Ekki er ég sammála því. Niður með óþarfa þráðalokanir!
Þó stundum fari ég sjálfur yfir strikið hvað varðar óþarfa tal á þráðum hér á Kveðist á, þá vil ég minna fólk á að hér á að búa til vísur, kvæði og kveðast á... og reynið það ef þið getið...
Fornar sögur Sússa um
sumir halda þvælu
einnig gamli Skabbi skrum
skelfur þó ei í ælu
En svörin best'í bragarform
birtast hér á svæði
annað þykir ekki norm
ei ég því á græði
Ertu númer Nonna með?
Nei, ég var að fíflast.
Gruggugt grínið nú ég veð.
Gott ef enginn truflast!
(Nennir einhver að lesa þetta yfir og leiðbeina mér?)