http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?p=382208#382208
Þessi hvimleiði fjandi er mjög til ama þá er ný síða tekur við.
ÉG VEIT ÞAÐ ÞARNA ... ÞARNA ... ÞÚ ÞARNA!
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Ósköp er hann hvumpinn og hvæsinn. Hlýtur að vera sá tími mánaðarins.
Sjálfur geturðu verið sá tími mánaðarins, glufeygði grænþörungurinn þinn.
Nohh, ekki vissi ég að þú kynnir á svoleiðis undratæki, skjálgtennta sítrónusugan þín.
Hvað í djúpfrystum dínamíthleðslum er eiginlega hlaupið í langleita krulludýrið ?! Hefur hann smitast af gelgjusýki ? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Nohh, ekki vissi ég að þú kynnir á svoleiðis undratæki, skjálgtennta sítrónusugan þín.
Það er eitt af öllu sem þú veist ekki, emaleraði eyrnamergurinn þinn.
Það er kölskakornið ekkert hlaupið í mig fjóreygða möppudýrið þitt - ég er bara að daðra aðeins við skúringakerlinguna.
Kurteislegar svívirðingar hafa stundum vafist fyrir mér - en ekki lengur.
Bessefarnir ykkar.
Mér sýnist þettað vera kaffiboð ráðstjórnarinnar
Sjálfur getur þú verið skúringakelling, gæruhærða gúrkan þín.
Það er kölskakornið ekkert hlaupið í mig fjóreygða möppudýrið þitt - ég er bara að daðra aðeins við skúringakerlinguna.
Fjóreygðir ?! Vjer höfum miklu fleiri en augu en það. Forsetaembættið hefur þúsund augu ! Kveikir á útsendingu njósmamyndavjela frá aðsetri Enters til að selja upptökur af ástarævintýrinu með skúringakonunni til Sjeð og heyrt e.þ.h. sorpfalsmiðla. Húsið á sljettunni birtist á skjánum
Hvaða hakksmjattandi hakkari kom væminni sykurleðju fyrir í tölvukerfi forsetaembættisins ? Skrapatól ! Rústar skjánum
Það er kölskakornið ekkert hlaupið í mig fjóreygða möppudýrið þitt - ég er bara að daðra aðeins við skúringakerlinguna.
Fjóreygðir ?! Vjer höfum miklu fleiri en augu en það. Forsetaembættið hefur þúsund augu ! Kveikir á útsendingu njósmamyndavjela frá aðsetri Enters til að selja upptökur af ástarævintýrinu með skúringakonunni til Sjeð og heyrt e.þ.h. sorpfalsmiðla. Húsið á sljettunni birtist á skjánum
Hvaða hakksmjattandi hakkari kom væminni sykurleðju fyrir í tölvukerfi forsetaembættisins ? Skrapatól !
Ýtir á Enter Æææ.....
Nokkuð ljóst á geðvonsku Krulla að efringinn er kominn í hús og svefnfriður og annar friður þar með farin út um holt og móa.
Mikið hvað ég skil han í raun vel.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég get mér þess til að þessu sé öfugt farið þegar afróbleiknefinn er annars vegar; að erfinginn eigi erfitt með að svæfa Enter sem svíkist um að fara í háttinn þrátt fyrir hávær mótmæli erfingja og barnsmóður. Þær eru svo erfiðar í umgengni, þessar prímadonnur.
Puff... að tala illa um skapara Gestapó fer nú ekki vel í mig... ég heimta afsökunarbeiðni frá öllum þeim tala illa um Kru... afsakið... Enter... (ég er nú þekktur fyrir að sleikja yfirboðara, ekki taka þetta illa upp þið hinir...)
xT