Æi koma svo, vera með. Ég var að taka hérna atriði úr Anger Management.
En nú skal ég endurtaka auglýsinguna og ekki orð um það meir.
Ef þú getur lesið þessi skilaboð hefur þér tekist að afkóða þau. Til lukku.
Jæja krakkar mínir. Ég hef nú skipulagt "flash mob" á Baggalút*, en ég hef ákveðið að þýða það hraðhittingur. Reglur eru þessar:
1) Aðeins mega taka þátt alteralteregó.
2) Fara skal inn á Fyrirspurnarsvæðið klukkan 12:33 á morgun föstudag (hringið í fröken klukku ef þið þurfið að fá tímann staðfestan). Þar skal spyrja að einhverju með fyrirspurnartitilinn "Mjög mikilvæg fyrirspurn til ritstjórnar!". Innihald fyrirspurnarinnar má að öðru leyti vera hvað sem er en hún skal vera í sláturrauðum lit.
3) Yfirgefa skal gestasvæðið klukkan 12:34, þ.e. mínútu síðar.
4) Skemmtið ykkur vel.
Lesa má nánar um flash mob hér.
Heiðglyrnir þarf að sjá þetta.
http://www.flashmosh.co.uk/
Og hvernig á maður að taka þátt ef ekki má búa til alteralterego fyrir þenna viðburð?
Ha? ha? ha? ha?
Blótar all herfilega og rífur hár sitt
En hérna geturu ekki haft þetta á öðrum tíma? Alteregóið mitt kemst ekki á þessum tíma.
Hjer eru engin alteregó og hvað þá alteralteregó. Hins vegar er eitthvað um alteregó í raunheimum. Óskiljanlegt er að einhverjum detti í hug að flestir eða allir hjer stundi það í stórum stíl að villa á sjer heimildir.
Já einmitt nákvæmlega, hvernig dettur þér það í hug? Ég var sko bara með kaldhæðni... Flautar sakleysislega út í loftið
Jarmi S. Auðdal er sko ekkert skálkaskjól fyrir lúsablesa úti í bæ. O-nei, þetta er ég og ef þið eigið bágt með það, þá verðið þið bara að lifa í súrtunnunni.
Þetta er óskiljanlegt fyrir gamlan mann eins og mig Klórar sig í skegginu
En Isak minn...er þetta ekki bara lúmskuleg tilraun hjá þér til að koma upp um altaralteregóin ? Þ.e. að komast að því hver þau eru? Það finnst mér ekki fallega gert af þér Hristir hausinn og horfir með vonbrigðissvip á Isak
En hvernig vitiði að ég (albin) sé t.d. ekki alteralterego? Held reyndar að ég sé ego frekar en alterego og hvað þá eitt alter í viðbót... en hvað veit maður sjálfur?
Starir þegjandi út í loftið

Nei nei, ég er ekki nærri því nógu klár til að hafa látið mér detta það í hug. Eftir því sem ég best veit eru alteralteregó með sjálfstæðan vilja, þau mæta bara ef þau nenna.
En hvernig vitiði að ég (albin) sé t.d. ekki alteralterego? Held reyndar að ég sé ego frekar en alterego og hvað þá eitt alter í viðbót... en hvað veit maður sjálfur?
Starir þegjandi út í loftið
Þá mætir albinið bara. Hvert alteralteregó verður að ákveða þetta fyrir sig.
Hér er ein fræðileg spurning og hún þarf ekki að vísa í neinn sérstakan, en það gæti þó verið að frændi frænda míns sé í þeirri aðstöðu að heita einhverju öðru nafni hér en út í kjötheimum. Er þá þetta svokallaða alteregó sá sem hann er hér eða þar? Ef við notum mig sem dæmi, sem þýðir þó ekki að svo sé ástatt um mig, þá gæti ég heitið Sæmi hér, en Gvendur í kjötheimum, Gvendur er þá alteregóið mitt, en ég alteregóið hans, því væri ég alteralteregóið mitt? Starir þegjandi út í loftið

Hlær ógurlega og klappar saman lófunum
12.33 segiði... nennir einhver að senda alteralteregóinu (sbr. staðhæfingu Sæma) sms til að staðfesta þátttöku þess... það er nefnilega að vinna.
Það væri fínt að fá smsið um kl. 12.30.
Ef menn eru með alteralteregó sem enginn má vita af geta þeir alveg sleppt því að láta þau koma fram (þó ómögulegt sé að komast að því hver standi á bak við þetta alteralteregó). Hinsvegar geta menn nú kannski leyft alteralteregóum sem flestir vita að eru slík (eins og <blíp> <blíp>, <blíp> <blíp> og fleiri). Kannski sjáum við aftur eðal alteralteregó á borð við Sívar Ívertsen og Ender.
Starir þegjandi út í loftið Hmmmmmmmm
Kanski frændi minn hann dæsihvillureistaminn mæti til leiks.Starir þegjandi út í loftið