Ef þú getur lesið þessi skilaboð hefur þér tekist að afkóða þau. Til lukku.
Jæja krakkar mínir. Ég hef nú skipulagt "flash mob" á Baggalút*, en ég hef ákveðið að þýða það hraðhittingur. Reglur eru þessar:
1) Aðeins mega taka þátt alteralteregó.
2) Fara skal inn á Fyrirspurnarsvæðið klukkan 12:33 á morgun föstudag (hringið í fröken klukku ef þið þurfið að fá tímann staðfestan). Þar skal spyrja að einhverju með fyrirspurnartitilinn "Mjög mikilvæg fyrirspurn til ritstjórnar!". Innihald fyrirspurnarinnar má að öðru leyti vera hvað sem er en hún skal vera í sláturrauðum lit.
3) Yfirgefa skal gestasvæðið klukkan 12:34, þ.e. mínútu síðar.
4) Skemmtið ykkur vel.
Lesa má nánar um flash mob hér.
Bannað er að búa til alteralteregó fyrir þennan viðburð!
Hvað er alteralteregó?
Alteregó = aukasjálf / annað sjálf.
En alteralteregó?
Fjölgaðu bara orðunum 'auka' eða 'annað'. Meira segja barn eins og þú ættir að sjá það út.
Ég var nú bara að reyna að skapa umræðuefni hérna, taka því rólega.
Viltu að ég falli í dauðadá? Ég er svo slakur að það hálfa væri nóg.
Ókey, landið okkar er að ganga í gegnum mikla erfiðleika núna og þetta er ekki eitthvað sem við viljum bæta á listann.
Það er alveg rétt. Ég í dauðadái bætir bara gráu ofan á svart.
Ert þú slakur á því, barnið mitt?
Þú skalt ekki hækka tóninn við mig!
Óttalegt kjaftæði er þetta. Auglýsing endurtekin:
Ef þú getur lesið þessi skilaboð hefur þér tekist að afkóða þau. Til lukku.
Jæja krakkar mínir. Ég hef nú skipulagt "flash mob" á Baggalút*, en ég hef ákveðið að þýða það hraðhittingur. Reglur eru þessar:
1) Aðeins mega taka þátt alteralteregó.
2) Fara skal inn á Fyrirspurnarsvæðið klukkan 12:33 á morgun föstudag (hringið í fröken klukku ef þið þurfið að fá tímann staðfestan). Þar skal spyrja að einhverju með fyrirspurnartitilinn "Mjög mikilvæg fyrirspurn til ritstjórnar!". Innihald fyrirspurnarinnar má að öðru leyti vera hvað sem er en hún skal vera í sláturrauðum lit.
3) Yfirgefa skal gestasvæðið klukkan 12:34, þ.e. mínútu síðar.
4) Skemmtið ykkur vel.
Lesa má nánar um flash mob hér.
Þú skalt ekki hækka tóninn við mig!
Viltu að ég sé djúpraddaðri? Hækka tóninn? Hvað meinar þú?
Gefur Jarma rafstuð með stuðbyssu
Alltaf skaltu snúa þér að ofbeldi. Sýnir hvaða mann þú hefur að geyma.
Strákar, elska friðinn!Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið