— GESTAPÓ —
Hagyrðingamót klaufa (rangstuðlanir og illa rímað)
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3, 4 ... 11, 12, 13  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Lopi 17/12/05 14:55

Djamma vil við drungalegan sýrujazz
svalar eyrum, svakalega sáttur
Þegar platan er búin segi ég pass
Það er minn virðulegi háttur

ég er ekki í sokkum
og hvað með það

Lopinn hefur andlit |||||||| The kind monkey |||||||| Ég fíla rokk og rok
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 17/12/05 15:08

ég er ekki í sokkum
og hvað með það
Lopa lögin nú rokkum
förum svo í baðkar

Það má alveg athuga
Að gera eitthvað vitlaust

KauBfélagsstjórinn.
GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Fáfróði Jobbi 18/12/05 17:17

Það má alveg athuga
Að gera eitthvað vitlaust
við verk á að vera alhuga
en ekki ef allt er verklaust

menn í fjólubláum klæðum
standa upp og klappa

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 18/12/05 20:29

menn í fjólubláum klæðum
standa upp og klappa
Kallar kaldir klappa klæðum
vappa kallar milli klappa

Aldrei ætla að oftstuðla
sleppi sjaldan höfustaf

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Sigfinnur Hráki 18/12/05 21:06

Aldrei ætla að oftstuðla
sleppi sjaldan höfustaf
saman handklæðum að kuðla
niðrá strönd að tína raf

margur þykist keilu kunna
djöfullinn í smábíl

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 18/12/05 21:11

margur þykist keilu kunna
djöfullinn í smábíl
Mætir honum öltunna
akandi á bláfíl.

Dagur ekki búin er
nótt er ekki hafin

KauBfélagsstjórinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Leibbi Djass 19/12/05 04:56

Dagur ekki búin er
nótt er ekki hafin
Nú er ráð og fimm fer
yfir þetta blaðin

Vísu margar ömurlegar
hef ég ort um mína tíð

Nú renna ekki öll vötn til Dýrafjarðar! Nú rennur allur djús til Pakistan!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 19/12/05 08:53

Vísu margar ömurlegar
hef ég ort um mína tíð
Dömur margar dömulegar
tek með heim og _ _ _

Góðann daginn segir hann
er samt ekkert betri

KauBfélagsstjórinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Leibbi Djass 20/12/05 04:50

Góðann daginn segir hann
er samt ekkert betri
Drekka vín það eitt hann kann
eldist með hverjum vetri

Skítalyktin særir nef
skilur það hver maður

Nú renna ekki öll vötn til Dýrafjarðar! Nú rennur allur djús til Pakistan!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 20/12/05 17:48

Skítalyktin særir nef
skilur það hver maður
Ennþá verra er mitt kvef,
því þá má ekkert daður.

Eyðilegt er á Arnarvatnsheiði
sést þar ei nokkurt stingandi strá.

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 23/12/05 16:52

Eyðilegt er á Arnarvatnsheiði
sést þar ei nokkurt stingandi strá
Finnst hjá Flugleiðum flugleiði
farþegar flýja flugvjel frá

Logandi ljósi leita
lítilla lamadýra

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 23/12/05 17:44

Logandi ljósi leita
lítilla lamadýra
Látum oss það gott heita
hér er öndvegissýra.

Finnandi óskast á hjóli
til sölu afgangur af skötu.

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 23/12/05 23:51

Finnandi óskast á hjóli
til sölu afgangur af skötu.
Sturtað í fötu
hent í næstu götu.

Löng er biðin þessi nú
partý fara að gerast

KauBfélagsstjórinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 25/12/05 12:00

Löng er biðin þessi nú
partý fara að gerast
Borða ég sko ekki kú
og vil ég ekki horast

Saddur varð ég rjúpum á
Matur sá er góður

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 25/12/05 13:49

Saddur varð ég rjúpum á
Matur sá er góður
Ísinn með súkkulaðihjúpnum á
er ekki neinn viðbjóður.

Kætumst öll og dönsum glöð
Áramótin bíða.

KauBfélagsstjórinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
sphinxx 25/12/05 15:37

Kætumst öll og dönsum glöð
Áramótin bíða
Í quentin tarantino röð
Við látum gamlárskvöldið líða

Fyrir utan staðinn Rex
Ég horfi á flottar svuntur

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 25/12/05 15:46

Fyrir utan staðinn Rex
Ég horfi á flottar svuntur
Borða ég þar ískex
og leiði hjá nokkrar truntur

Ljótur er hann nú að sjá
Laugardalsins völlur

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
sphinxx 25/12/05 16:06

Ljótur er hann nú að sjá
Laugardalsins völlur
Þar undirfötum hlaupa á
Tuðrusparks stöllur

Hvað skal gjöra nú í kveld
Leiðist mér heil ósköp

LOKAÐ
        1, 2, 3, 4 ... 11, 12, 13  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: