— GESTAPÓ —
Ofurafl kóbaltsins.
» Gestapó   » Vísindaakademía Baggalúts
     1, 2  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Blástakkur 8/10/03 16:50

Nú hef ég snúið aftur frá ævintýrum mínum sem kóbaltfallbyssukúlu og hef ég öðlast ofurkrafta sem gera mér kleift að sundra kóbaltsameindum með hugarafli. Ég heimta þess vegna Eitt þúsund milljón smilljarða í ómerktum dínörum fyrir að sprengja ekki í loft upp kóbaltbirgðir Geimbraskstofnunarinnar!

Ifil Rukkatsálb.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 9/10/03 00:11

Það er ekkert mál fyrir oss að borga yður þetta lítilræði og gott betur. Vjer gerum það eftir helgi því því sem eftir er af vikunni svo og helginni ætlum vjer að eyða við brask, spákaupmennsku og efnahagslega skemmdarverkastarfsemi í þeim göfuga tilgangi að fella gengi ónefnds gjaldmiðils um 99,999999999999999999999999999999999999999999999999999999 prósent.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 9/10/03 09:16

Jóakim Aðalönd, félagi í F.Á.U.Á.U.Ú.G., ku eiga gríðarlegt magn af dínörum sem hann vill ólmur losna við. Mér sýnist sem við hljótum að geta komist að ásættanlegum málalokum.

Gagnvarpið er komið til að vera
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Blástakkur 9/10/03 22:17

Ég vona bara að þið standið við stóru orðin. Ég er orðinn leiður á að borða pylsur á afslætti. Nú er komið að því að ÉG sé á toppnum! Heyriði það ÉG ... á TOPPNUM. Ég ég ég ég ég ég ég ÉG..!!!

Ég býst við að þetta muni koma á þýskri tungu en ykkur mun öllum hefnast fyrir það. Þegar þið eruð búnir að borga tilsetta upphæð mun ég koma með fleiri og skemmtilegri kröfur.... Fólk mun fá að borga fyrir þær þjáningar sem ég hef ekki þurft að líða.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Rauðbjörn 9/10/03 22:51

Mér þykir miður að þurfa að spilla gleði þinni, en sem ábyrgur borgari get ég ekki skilið jafn öfluga tækni og þessa í fórum einstaklings sem þjáist af jafn miklum... við skulum kalla það "óstöðugleika" og þér.

Því hef ég tekið höndum saman með gömlum skólafélögum mínum frá Edinburg og starfsfólki leynilegri rannsóknarstofu orkuveitunnar að Keldum og hef búið til tæki sem er til þess ætlað að stöðva þig.
Tækið virkar í grundvallaratriðum þannig að það brýtur tafarlaust niður allt það kóbalt sem kemur innan við 20 metra frá því niður í geislavirka kolefnissamsætu sem í fyrstu virðist meinlaus, en þegar helmingunartíma hennar líkur(svona á að giska 32 sekúntur) þá umbreytist hún yfir í áður óþekkt frumefni sem er svo óstöðugt að þú kemur til með að splundrast niður í hraðeindir og annaðhvort færast yfir á annað tímaskeið eða breytast í svissneskan var-knattspyrnumann(öðlast s.s. þýsku að móðurmáli, svissneskt ríkisfang og knattspyrnuhæfileika á fullu tungli), á hvora leiðina sem fer þá kemur allt kóbaltið til með að eyðast upp og svipta þig ofurkröftunum.
Þetta tæki er á stærð við meðalstóra bréfaklemmu og verður gangsett um leið og Hans kemur heim, en ég sendi hann út á Esso eftir rafhlöðum.

Dagar þínir sem ógnvalds eru taldir minn kæri.
Virðingarfyllst,
Rauðbjörn, samstarfsmenn & starfshópur leynilegu rannsóknarstofunnar að Keldum.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Blástakkur 9/10/03 23:05

HAHAHAHAHAHAHA!!!!

En hvað ætlarðu að gera þegar þú kemst að því að ég hefi þann óútskýranlega hæfileika að andsetja ljóshærðar stelpur sem eru milli 165-175 á hæð og vega um 55-65 kílógrömm. Ég get fylgst með öllu sem þið gerið og stöðvað ykkur úr felum. Ég býst ekki við að þið munið geta staðist freistingarnar sem felast í ljóshærðum stelpum verandi slíkir elektrónískir nördar sem mér heyrist þið vera!

Enginn skal stöðva mig! Enginn GETUR stöðvað mig!!!

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Rauðbjörn 9/10/03 23:29

Nú þegar þú hefur varað mig við, og verð ég að óska þér til hamingju með hversu kolossískt fólskuverk þú hefur unnið með því að gera það, hef ég gert nauðsynlegar ráðstafanir til að koma í veg fyrir þetta djöfullega ráðabrugg þitt.

Günther situr á þessu augnabliki við stjórnborð smækkunargeislans og mun hann smækka alla þá sem dirfast nálgast höfuðstöðvar mínar og hafa að geyma tvo X-litninga niður í 164 cm. á hæð,
sem skilur allar þessar flekklausu sálir eftir vel fyrir utan valdasvið þitt.

Með þökk,
Rauðbjörn, verndari alheimsins.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Blástakkur 9/10/03 23:53

Smá mistök af minni hálfu... Ég var búinn að gleyma að fyrst kemur gildran og SVO uppljóstrun djöfullegra áforma.
En þér eruð um margt óupplýstur ef þér haldið að þér séuð búnir að stöðva mig svo auðveldlega! MWOOHAHAHAHAHAHA!!

Ég mun leiða ykkur í díabólíska gildru og segja ykkur frá öllum áformum mínum til heimsyfirráða. Af hverju spyrðu?!!! Af því ég er ÓSIGRANDI!!!!

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Rauðbjörn 10/10/03 00:19

Augljóslega þarf að koma þeirri hættu sem stafar af þér fyrir kattarnef, því hef ég og vísindamenn mínir greint erfðavísa þína til hlýtar og tvinnað saman við þá sérstakan ólæsi-vírus.
Vírusunum mun síðan verða dreift í gegnum ljósleiðaranet símans internets uns hann berst til þín á einn eða annan hátt.

Það kemur manni í koll að vera vondur félagi, þó að það kunni að borga sig þegar maður hefur vit á því upplýsa ekki alþjóð um fyrirætlanir sínar.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Júlíus prófeti 10/10/03 11:15

Í ljósi þess að Blástakkur hefir sýnt fram á slíkan og þvílíkan vilja til spellvirkja hefur undirritaður haft samband við Páfagarð, og grennslast fyrir um hversu langan tíma fordæming taki. Hefur undirritaður komist að þeirri niðurstöðu að fordæming er raunar ekki flókið mál, og því mæli ég með því að hann verði fordæmdur, en slík aðgerð hefur löngum virkað gegn fólum af hinum ýmsustu stærðum og gerðum. Er undirritaður reiðubúinn að sjá um fordæminguna, til dýrðar F.Á.U.Á.U.Ú.G.

Júlíus prófeti • Félagsmálaráðherra Baggalútíu
GESTUR
 • LOKAР• 
Afbæjarmaður 10/10/03 12:11

Þið eruð að nota ranga taktík í baráttu við ofurmennið Blástakk. Ég legg til að við bjóðum honum inngöngu í Félag vort, því ljóst er að hann hefur mikið til brunns að bera. Með því að finna veika bletti á Blástakki má auðveldlega tæla hann í samstarf með okkur. Á skrifum hans hef ég fundið einn feitan stóran veikan blett, takið eftir:

Blástakkur, hví gangið þér ekki í lið með okkur. Það vill svo heppilega til að tvær ungar konur sem eru með okkur í liði vilja hitta þig fyrir alla muni, þær hafa hrifist af karlmannlegri framgöngu þinni og reffilegu rebelsútliti. Þær heita Debbie og Trixie og eru fáklæddar tvíburasystur frá Texas, þar sem allt gott er stórt. Ef þú gengur í lið með okkur munu þær hiklaust vilja fá fund með þér á afviknum stað, segjum villu félagsins á Barbados? Ef þú velur að ganga í félagsskap okkar og hitta tvíburana, mæli ég með að þú kaupir eitthvað smáræði til að gleðja þær, ég man að þær voru að tala um að þær vanti brjóstahaldara. Kauptu endilega svoleiðis það slær örugglega í gegn, stærð 36 DD cup.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 10/10/03 12:13

Já, það var ég sem skrifaði ofangreint. Bölvuð skráningarvélin að trufla mann.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 10/10/03 12:14

Fordæmi þú manna heilastur Júlíus!
Ek verð þó að vara þig við honum Blástakki, þetta er viðskotaillur andskoti, t.a.m. gjörði ek heiðarlega tilraun til að brenna hann á báli fyrir skemmstu en á einhvern hátt náði hann að þrauka grefillinn og hefur síðan setið fyrir mér við hvert fótmál.

Tjahh, þó gæti Hakuchi haft nokkuð til síns máls, það væri vitanlega mikill akkur af því að hafa Blástakk sem félaga í F.Á.U.Á.U.Ú.G. við skulum sjá hvað setur.

Gagnvarpið er komið til að vera
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 10/10/03 12:29

Já Glúmur, hann yrði t.d. tilvalinn sem yfirmaður gagnhryðjuverkadeildar félagsins. Hann gæti varið okkur hetjulega gegn njósnaviðleitni CIA, Frakka og Indverja svo ég nefni nokkra hrekkjalóma.

GESTUR
 • LOKAР• 
Ég 10/10/03 16:16

ég ég ég ég ég

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Tigra 10/10/03 16:23

Hmm.. ég er með einfalda lausn á ofangreindu vandamáli kæru samlesendur.
Ég skal bara borða Hr. Ifil Rukkatsálb

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Rauðbjörn 10/10/03 16:36

Já, ek myndi telja að það væri mjög farsæl lausn á þessu vandmáli, svo eru fleiri sem stafar enn meiri hætta af, t.d. mættiru einnig taka að snæðingi þennan asna vestanhafs, hann Gogga, þó að ég búist við hann bragðist eins og kæst ýsa þá væriru að gera okkur hinum greiða.

Það væri svo kannski ekki það vitlaust að fjárfesta í eigin tígrisdýri, mín ágiskun væri sú að hægt væri brúka þessi rándýr til fleiri og hversdagslegri verka en bara að éta fólk, spurning.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 12/10/03 17:59

Já, þau eru fyrirtaks gæludýr eins og nýlegar frjettir frá New York hafa sýnt.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
LOKAÐ
     1, 2  
» Gestapó   » Vísindaakademía Baggalúts   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: