Jæja lömbin mín, ég hef ákveðið að taka mig til og loksins skrá mig inn hérna. Búinn að lesa ykkur í meira en ár núna og töluvert kíkt á eldra efni og mér finnst ég þekkja ykkur öll sæmilega. Þessvegna finnst mér rétt að ég hætti að njósna þetta og bara stígi fram og kynni mig.
Jarmi S. Auðdal reporting. Eins og þeir segja í breska hernum.
Vonandi verður gaman hjá okkur áfram.
Helduru að einhverjum áhugamanni sé hleypt inn í konunglega forsetaeldhúsið ?
En já í raunheimum sem og hér.
Flott er! Fær maður ekki gott lambakjöt hjá þér vinur? Maður verður svangur af öllum þessum skrifum.
Blessaður Jarmi.
Setur upp kartöflur. Velkomið lambið mitt.
Slær upp fagnaðarveislu Skál og velkominxT
Velkominn, megi dvöl þín hér vera þér sem ánægjulegust, þú lítur út fyrir að vera sæmilega rétt skrifandi og þenkjandi.
Þú ert annars heppinn að nýliðaskelfarnir eru í pásu...
klappar á kollinn á Jarma
Velkominn, megi dvöl þín hér vera þér sem ánægjulegust, þú lítur út fyrir að vera sæmilega rétt skrifandi og þenkjandi.
Þú ert annars heppinn að nýliðaskelfarnir eru í pásu...
klappar á kollinn á Jarma
Já hvar er Frelli? Og Vímus letihaugur, þykist hafa annað að gera en að sýna þegnskap og vera sveitungum sínum til gleði og uppörfunar.
Endurnýar ekki áratuga gamlan forngrip sem hann notar sem afsökun fyrir tölvuleti sinni.
Eftir hugsanleg mistök í sambandi við Grýtið, þegar við töldum að verið væri að leika á okkur hef ég haft frekar hægt um mig í þessu sambandi, en það er aldrei að vita hvað gerist þegar jólasteikin kemur jarmandi inn í eldhús. Fer að athuga með fjöl og fírtommunagla, nær í slaghamarinn út í bíl.
Já vertu velkominn, í bili allavega. Sjáum bara til hvernig rætist úr þér.
Ég hef nú bara ekki séð Vímus langalengi.
hej på dig
Nú er ég svo mikill heimskingi, hvaða gjaldmiðill er notaður í Baggaútíu? Ekki spyrja um ástæðu, hún kemur seinna.
Böggur heitir gjaldmiðillinn.
Neinei...bara meme með ullinni og öllu...