Ég heiti Halli en geng undir dulnefninu Nornarstrákurinn.
Ég ákvað að skrá mig hingað inn vegna þess að mér þótti þetta samfélag forvitnilegt og hlakka til að blanda meira geði við ykkur.
Hittumst heil.
Sæll Norni! Gott að fá þig, ég lofa að vera ekki vond við þig.
Velkominn Norni.
Stattu þig vel, vertu kurteis og vandaðu málfarið.
Þá er aldrei að vita nema einhver nenni að tala við þig. Glottir eins og fífl
Sæll. Snýtir Nornarstráknum
Flautar af öllum lífs og sálar kröftum og kallar svo: Hei Norna! Hérna er einn handa þér.
Vertu annars velkominn Nornu strákur ...uuu... ég meina Nornastrákur. Roðnar óstjórnlega
Setur upp Bubbasvipinn. Bleehhtzaður Norni.
Sæll vertu. Réttir Nornastráknum útslitinn og skörðóttan víkingaskjöld Passaðu uppá þennan fyrst um sinn.
Hengir lítinn miða á brjóstið á norna sem segir "Atgeir hér"
Skoppar flissandi út
Ég heiti Halli en geng undir dulnefninu Nornarstrákurinn.
Ég ákvað að skrá mig hingað inn vegna þess að mér þótti þetta samfélag forvitnilegt og hlakka til að blanda meira geði við ykkur.
Hittumst heil.
Til hvers er dulnefnið ef þú ert búinn að gefa þitt rétta nafn Halli minn.
En vertu annars velkominn kallinn.
Pantar að eiga nýliðann, setur hann í ól
Sko hvað hann er sætur!
Ætli fari eins fyrir honum og fór fyrir Dorit?
Hlær eins og lambúshetta á læknalyfjum
-
Að Norni pissi á heimaverkefni aulans ? Klórar sér í höfðinu
Ætli hann sé ekki kassavanur.
Kíkir á tennurnar í Norna og athugar líkamsbygginguna
Nei sko, það er smá kjöt á stráknum. Ljómar upp og rifjar upp uppskrift
Stálar hnífinn