Usss.
Ég fór á þetta svokallaða útsölu bull um daginn og fann EKKERT sem mig langaði til að kaupa.
Þegar ég á peninga þá finn ég ekkert til að eyða þeim í (nema bækur) og svo þegar maður er alveg blankur þá virðast verslanir vera fullar af fínum fötum!
Er þetta samsæri?
Annars langar mig ekki að vera að fara að vinna.
Já, þetta er allsherjaralheimssamsæri bankanna og kreditkortarisanna!
Ég er bara búin að vera blönk svo lengi að ég man ekki eftir búðunum öðru vísi en fullum af dýrindis varningi! Auk þess fékk ég jólagjafapening sem ég átti að eyða í föt - og það er víst betra að gera það áður en ég sólunda honum öllum í mat og aðra vitleysu...
Mig langar í rommí.
Mig langar að stillingarnar í tölvunni minni lagist! Af hverju get ég ekki verið tölvugúrú?! Blótar herfilega og rífur hár sitt
Af því þú ert lovegúrú? Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Jaaaaá, það hlaut að vera. Ég kom þessu samt í lag þannig að ég er greinilega ekki alslæmur...
Mig langar í harðfisk með sméri.
Mig langar í góðan morgunverð.
Mig langar í pening.
Tekur gamla ömmu upp á afturfótunum og hristir peningana úr vösunum
Mig langar að ógna háværu krakkaskröttunum hinumegin við vegginn með keðjusög.
... í eitthvað.
... að svefninn drullist til að sækja mig.
..svo.
...að komast í framhaldsskóla. En það gæti orðið erfitt þar sem árgangurinn minn er sá stærsti í Íslandssögunni.
... í... ömm... hmmm
...að komast í framhaldsskóla. En það gæti orðið erfitt þar sem árgangurinn minn er sá stærsti í Íslandssögunni.
... að vera enn í grunnskóla, þar sem kennararnir hjálpuðu manni með námið.