Sæl öllsömul, ég, Ljónshjarta, er hér kominn. Vona að það verði gaman og að vel verði tekið á móti mér. Lifið heil.
Velkominn.
Ekki ertu bróðir minn ?
Hengir sig í refsingarskyni fyrir ömurlega kímnigáfu
-
Horfir strangt á Limbra...
Já sæl/l ljónshjarta.
Þakka ykkur fyrir. Veit nú ekki hvort ég er bróðir þinn, eigum við að framkvæma DNA rannsókn?
Ó hvað ég sakna Frella þegar ég skoða þennan nýliða. Með fullri virðingu fyrir Guðmundi, þá hefur enginn fyrr eða síðar náð eins góðum tökum á nýliðaböggi. Að horfa á Frella slá nýliða til og frá, taka hann af taugum, niðurlægja og berja til biskups var hreinn unaður. Sannur listamaður hann Frelli.
Dæsir yfir þeim gömlu góðu dögum þegar nýliðum var sýnd fyrirlitning og þeir tuskaðir til án miskunnar uns þeir voru orðnir húsum hæfir
Aaahh...svipugöngin...klósetthreinsanirnar...300 armbeygjurnar yfir sjóðandi olíu...
Horfir dreyminn út um gluggann
Jæja Ljónshjarta. Inn með þig! Horfir á Ljónshjarta með fyrirlitningu og bendir honum á svipugöngin sem eru fyllt á gólfunum af nýkólnuðu hrauni sem þó er enn mjög heitt Svona, eftir hverju ertu að bíða?! Áfram með þig!!! Sveiflar svipu í bakið á þessu Ljónshjarta og vonar að þetta lini söknuð konungsins
Áfram! Sveiflar svipunni aftur í Ljónshjarta
Hæ Ljónsi. Blikkar
Áfram! Sveiflar svipunni aftur í Ljónshjarta
Verður hræddur Hvað á þetta að þýða, er ekki tekið vel á móti nýliðum hérna?
Gerðu bara eins og þér er sagt! Tekur upp vélbyssuna ...Eða þú hlýtur verra af.
Jújú stundum er tekið vel á móti... hvíslar..vertu velkominn bara.skallar Ljónshjarta í hnéð svo Don verði ekki reiður
Áfram!
Bítur Don fast í eyrað
Vertu góður! Þessi er krúttlegur!
Étur byssuna
Ókei þá. Hrindir Ljóna bara ofan í tjörupytt í staðinn Allt í góðu, er það ekki bara? Labbar út
Áfram! Sveiflar svipunni aftur í Ljónshjarta
Verður hræddur Hvað á þetta að þýða, er ekki tekið vel á móti nýliðum hérna?
Hann Don er í einhverju busunarstuði þessa dagana. Ef þér hinsvegar tekst að fá Doninn til að hlæja þá er aldrei að vita hvort að hann sleppir þér billega. Hefur löngutöng krosslagða yfir vísifingur þeirrar handar sem falin er fyrir aftan bak
Úúú, tjara! Hoppar í pollinn