Deytt hefur marga refi Runnki
rosa frekt..
Á fasana og hana hlunnki
hörmu lekt.
Af byggingaframkvæmdum í vetrartíð
Lektum vegginn læddi á
lést það vel.
Fjalir yfir festi þá.
Fast beit él.
Élið hart um dalinn drífur
drungalegt.
Eins er þegar kólfur klýfur
kuldans mekt.
Mektar- veit ég menni fara
mörg í þrot.
Undirskriftir allra bara
ónýtt krot.
Krota litlir krakkar, veggi
krassa út.
Enginn vil að línur leggi
litlakút.
Kútinn uppá röndu reisti,
reindist vel.
Gjarðir síðan lausar leysti
lokið tel.
Tel ég daga, dreymi enn
um dag í sátt.
Upp á himni sólin senn
mun svífa hátt.
Háttuð vildi vera nú
og vafin dún,
sofandi og sæl í trú
á sannleiksrún.
Rúnir sannar svíkja ei
né særa geð.
Að morgni ýfist ágætt fley
og eykst enn streð.
Streðið er mitt stolt & lán
& stóra ást.
Mun ég þess míns yndis án
til einskis fást.
Fást við Satan samning gerði
sem er þekkt.
Galt svo fyrir fullu verði;
furðulegt!
Furðulegt er furðu margt
það furða er.
Eitt er svart en sumt er bjart
og súrt er ber.
Ber er hver að baki' er ekki
bróður á.
Vænta má að margur svekki
manninn þá.
Þá er ljóst að ligg ég í því
ljótt er það
Mér veitir Ákavíti frí í
VÍSA rað.
Raðar sínum vísum vænum
á vísan stað.
Sem merktar eru gyltun grænum
gulnað blað.
-blaðið með með mér Frétta- fer
í freyðibað.
Þar svo ljúft að liggja er
og lesa það.
[i]
Það er alveg í dagsins draumi
dæmið ljósa.
Að berjast umm í flokka flaumi
og frammsókn kjósa.
Kjósa munum rétt ef rétt
er raðað á
framboðslista, stétt með stétt
skal standa þá.