— GESTAPÓ —
Dverghendukeðja..!..
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 24/9/07 23:48

Everton ég aldrei letra
út af því
Liverpool er bara betra
bolta í.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 26/11/07 22:58

Ískápurinn alltaf virtist
auðn og tóm,
uns að lokum engill birtist
efrigóm.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 10/1/08 20:33

Þráður vikunnar...

Efrigómur eins og virki
eftir skreið.
Gervitennur gef'að styrki
glennubreið.

To live outside the law, you must be honest.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 12/1/08 22:05

Breiðist út um andlit póa
ekki gos,
oft við sjáum augun glóa:
Einlægt bros.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 12/1/08 22:09

Brosa þó að gráti gumar
gelgjuhross
þó að dreymi sjálfsagt sumar
svefn með oss.

Ríkissáttasemjari Baggalútíska heimsveldisins. Vonbiðill hinnar keisaralegu hátignar, hirðskáld og varavaravarakeisari. Níðskáld hinnar konunglegu hirðar. Nánast óþægilega kurteis...Besserwisser og Negradýrkari.‹Ljómar upp.›
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 12/1/08 23:31

Vjer hjer yrkjum vísur dverga,
vöndum oss.
Þeirra mærum vöxtinn verga,
víst til bross.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 13/1/08 12:41

Bros er allra best til vinar,
býðst þá hnoss
þó að allar heimti hinar
hálfan koss?

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Andþór 13/1/08 14:50

Kyssa vil ég konur fríðar,
kela smá.
Ef þær reynast röskar þýðar,
ríða þá.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Fíflagangur 13/1/08 18:17

Þá mun ég þyngja massa,
og þó.
Svo mun ég syngja bassa:
Á sjó.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 13/1/08 19:23

Reyndar ekki dverghenda, en nærri lagi... lími saman með tveimur afbriðgum af dverghendu

Þá ég vildi vaka lengur
varla ber.
Sést þá þessi seigi drengur
sómi fer.

Sjómaðurinn sveiflar net
um sæ og ver.
Þó oft ráði rembingshret
í róður fer.

To live outside the law, you must be honest.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
lappi 16/1/08 13:58


Fer á kostum Halli hraukur
höfuð mjór.
Enda orðinn gamall gaukur
gríðar stór.

lappi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 20/3/08 20:10

Stórir eru stuðlar hér
í stuttum brag.
Litla hendan birtu ber
og bætir hag.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Loki 30/3/08 21:36

Haga mínum orðum illa
oftast ég.
Vísur mínar vanhöld fylla
veruleg.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 12/5/08 23:16

Verulega virðist hækka
verðið allt.
Enn þó sýnist lítið lækka
leir og salt.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Einn gamall en nettur 12/5/08 23:20

Saltað kjet er súper fæði
sefar geð.
Ekki spyr um einhver gæði
eða féð.

JÓLABARN ---- Dáldið svag fyrir Jóakim Aðalönd
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 12/5/08 23:44

Féð er úti, upp á fjöllum
eigra lömb.
Forsetans í fínum höllum
fylla vömb.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 13/5/08 00:12

Vamban hverfur vegna anna
vel það er.
Skarð hans fyllir fjöldi manna
- flestir hér.

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Útvarpsstjóri 13/5/08 00:20

Hér er virkjað vísnagenið
vel það er.
Safnast æ þó ansans slenið
upp hjá mér.

Fjósamaður Heimsveldisins - Eigandi allra prófskírteina Herra Hafralóns - Fjölmiðlafulltrúi RBB
        1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: