Hættiði að monta ykkur!
Fer út í horn í fílu
Ó... höfuðið á mér.... Reytir hár sitt
lærir maður aldrei... Strýkur fingrum í gegnum fitugt tóbaksmengað hárið
Ég er alveg viss um að hafa einhverstaðar skrifað hjá mér að halda áfengis neyslu í hófi daginn fyrir vinnu... Starir blóðsprungnum augum út í loftið
Bringu eða bakhárið? Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
fer í fýlu yfir því að hafa misst af tónleikunum Blótar herfilega og rífur hár sitt
Ég virðist hafa notið þeirra forréttinda að þurfa ekki að vinna í dag.
Enda eins gott því ég var að koma heim og er að fá mér afréttara. Ég er ekki mikið fyrir bjór, en nú rennur ískaldur fílafanturinn um kverkar mér líkt og tærasti fjallalækur
Þvílík gleði, þvílíkt öndvegis kvöld, þvílík mæting í matinn, þvílíkur matur og ekki var rauðvínið af verri endanum. Þvílíkur hópur, stuðboltar að handan, Þvílíkir tónleikar, strákarnir okkar spiluðu eins og þeir væru andsetnir og sungu eins og englar. Þvílíkt sem var öskrað, sungið og dansað.
.
Þvílíkt sem að Riddarinn hefur ákveðið að hafa það gott í dag, raddlaus, með suð fyrir eyrum og sólheimaglottið svo kyrfilega fast á andlitinu að hópur lýtalækna mættu reyna, en hefðu ekki erindi sem erfiði í að ná því af. hahahhaahahahaaaa.
.
Þakka þeim vaska hóp Gestapóa sem mætti og gerði þetta að þessari fyrirtaks skemmtun, þvílíkt öndvegisfólk, þvílík gleði.
.
þvílík minning til að eiga..!..
Ég er í skýjunum, svo mikið er víst. Er að bæta upp fyrir maltið sem ég hefði getað drukkið í gærkvöldi.
Hjálpar Furðu með því að færa henni 20 bretti af malti
Færir svo Riddaranum 12 bretti af verkjatöflum
Þetta var Flott kvöld.
Hjálpar Furðu með því að færa henni 20 bretti af malti
Færir svo Riddaranum 12 bretti af verkjatöflum
Þetta var Flott kvöld.
.
Isss..!.. Er bara alveg verkjalaus.. Selur verkjatöflu brettin á svörtum markaði upp í kostnað
Ég var búin að vera að gráta það að ég hafði lofað mér annað og kæmist því ekki á tónleikana en margt fer öðru vísi en ætlað er, ég endaði bara heima með sárlasna prinsessu og fór því ekki neitt.
grætur HÁSTÖFUM
Ekkert skyggði á spiliríið nema að mér fannst hljómburðurinn í húsinu ekki sæma stórsveit.
Heiðglyrnir á heiður skilinn fyrir sitt innlegg (þú er nú meiri sprellikallinn) og mér fannst leiðinlegt að hafa ekki tök á að mæta með honum og öðru heiðursfólki í matinn.
Eina spurningu verð ég þó að ber fram í kvörtunartón enda kemur hún tónleikunum sem slíkum ekkert við.
Hvernig í heitbrendu helvíti stendur á því að veitingahús leyfa sér aðra eins álagningu. Yfir tvöhundruð% á vínið og tvöþúsund!!% á gosið. Drakk fimm glös fyrir 7000kall sem venjulegur launamaður að frádregnum gjöldum er rúma tvo daga að vinna fyrir. Í dýrustu vínbúðum heims hefði ég fengið tvær heilar flöskur og átt samt þúsunkrónur eftir. Eða flogið til Köben!
Enda tæmdist búllan um leið og tónleikunum lauk.
Ísa mín ég votta þér innilega samúð mína. grætur lágstöfum
Ekkert skyggði á spiliríið nema að mér fannst hljómburðurinn í húsinu ekki sæma stórsveit.
Heiðglyrnir á heiður skilinn fyrir sitt innlegg (þú er nú meiri sprellikallinn) og mér fannst leiðinlegt að hafa ekki tök á að mæta með honum og öðru heiðursfólki í matinn.
.
Sprellikarl Riddarinn ha.!. Hann sem sat virðulegur, þögull og grafalvarlegur í sínu horni allt kvöldið. Hvað eigið þér við herra minn. Maður bara skilur ekki svona aðdróttanir hmmm..!..
Ha ha, mig grunaði að ég myndi toga í spotta með því að skjóta þessu inn með sprellikallinn.
Þú er þó allavega vaknaður! xT
Jæja, eigum við ekki bara að endurtaka þetta í næstu viku?
Sammála Riddaranum.
Hann sat herra stilltastur og prúðastur þetta kvöld.
Jæja, eigum við ekki bara að endurtaka þetta í næstu viku?
Þá verð ég að segja pass þar sem ég er að fara til Skotlands í næstu viku ... aftur.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Jæja, eigum við ekki bara að endurtaka þetta í næstu viku?
Þá verð ég að segja pass þar sem ég er að fara til Skotlands í næstu viku ... aftur.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ohhh... mig langar til Skotlands... Sparkar í stein