Loksins má nálgast alfræðiorðabók á Vefnum þar sem sannleikurinn er í fyrirrúmi.
Sjá t.d.: http://uncyclopedia.org/wiki/Iceland
snildarsíða.Fann þessa snild þar
Farðu í rassgat Raufarhöfn,
Rotni, fúli, drullupollur.
Andskotinn á engin nöfn,
Yfir öll þín forarsöfn,
Farðu í rassgat raufarhöfn
Þakka þér kærlega Ísak fyrir að benda á þessa síðu.reynir að dempa hláturinn
Þakka þér kærlega Ísak fyrir að benda á þessa síðu.reynir að dempa hláturinn
Vjer viljum vekja athygli á að eigi er það aðhlátursefni að sannleikurinn sje tekinn að breiðast út fyrir hinn eina sanna miðil sannleikans, þ.e. Baggalút. Það er þvert á móti gleðiefni.
Vjer rákum hins vegar augun í að þarna er hvergi minnst á stórveldið Baggalútíu. Það hefur ýmsa kosti sje hin að því er virðist endalausa barátta gegn óvinum ríkisins höfð í huga en er engu að síður umhugsunarefni.
Hér hefur greinilega verið landi vor á ferð, nú er bara að leita að lekanum?
Þetta er náttúrulega skyldulesning hverjum þeim sem vita vill allt sem satt er!
Ahh, nú hefur sannleikurinn verið afhjúpaður! Vei þeim er héldu þessari síðu leyndri fyrir þegnum Baggalúts. Nú fyrst mun hið bagglútíska heimsveldi rísa sem aldrei fyrr!
Þetta er hið nýja 1000 ára ríki.
Lifi sannleikurinn!
Ég var að spá hvort að einhver myndi nenna að skrifa eitthvað um Baggalútíu þarna inn, það geta nefnilega allir skrifað inná þetta og allir bætt við líka. Ég hins vegar treysti mér ekki í það að koma með fyrsta uppkast.
Athugið! Ef þið viljið breyta þessu ættuð þið e.t.v. að búa til ykkar reikning (ekki senda inn nafnlaust). Mínar breytingar eru undir nafni mínu, Isak Dinesen.
Og svo er bara að bæta aðeins í þetta og breyta nokkrum smáatriðum um Ísland (http://uncyclopedia.org/wiki/Iceland) líka.
OOOOOOOHHHHH þetta minnir mig á vísukorn sem haft var um mig er ég var rúmlega sæðisfruma. Hún er einhvernvegin svona: Hanga lýs í hárinu,
hoppa flær á búknum,
nagar maur (kláðamaur) í náranum,
njálgur rís á kúknum.
Nú er ég svo mikill heimskingi, hvaða gjaldmiðill er notaður í Baggaútíu? Ekki spyrja um ástæðu, hún kemur seinna.
Jæja skiptir ekki máli. Var að setja inn svona töflu, vantar fána (hver er eiginlega baggalútíski fáninn?) og svo þarf aðeins að fylla upp í og bæta við. http://uncyclopedia.org/wiki/Baggal%C3%BAt%C3%ADa
Nú er ég svo mikill heimskingi, hvaða gjaldmiðill er notaður í Baggaútíu? Ekki spyrja um ástæðu, hún kemur seinna.
Baggan.
En passar ekki annars bara ágætlega að hafa Vigdís Finnbogadóttir með Baggalút sem þjóðlag?
Það þyrfti að skrifa smá grein um Undirheima þarna.