Mér var bent á ákveðin skrif á ákveðnu vefsvæði. Þar má sjá ömurleika H***.is í öllu sínu veldi. Ég hálf skammast mín fyrir að setja tengil á þessa hneysu en þetta er gert í vísindalegum tilgangi. SMELLIÐ HÉR
Leggst í vísindaleiðangur vopnaður nýjustu útgáfu orðabókar Marðar ÁrnasonarHrökklast aftur á bak og hrasar við Ja hérna hér. Var eitthvað á þessu svæði innan eðlilegra innsláttarvillumarka ? Finnur hvernig orðabókin byrjar að ofhitna og missir hana á jörðina
Rrr... of margar... stafsetningarvillur... verð... að drepa eitthvað...
Trompast
Rífur í engil og bítur af honum hausinn
Þetta er meistaraverk! Deyr úr of stórum skammt af kaldhæðni
Og hver er vísindalegi tilgangurinn? Að sanna yfirburði Gestapó? Ég held að það sé ekki nokkur manneskja , planta eða dýr hér á bæ sem veit það ekki nú þegar.
Mikið er mér illt í augunum eftir að hafa lesið þetta. Hafið mig afsakaða.
Tekur nokkra dauðakippi
Þetta eru hollar ráðleggingar, og ég hyggst fara eftir þeim. Níð mitt í garð Björgvins Halldórssonar á vefsvæði mínu er auðvitað komið úr fyrir öll velsæmismörk; ég sé það núna.
Mér fannst þetta fínt. Þetta gaf nefnilega fína mynd af rithæfileikum ungdómsins á þessum síðustu og verstu tímum.
Það er von mín að rit sem þessi verði fólki til umhuxunar og að út frá slíkum íhugunum vakni umræða á almennum vettvang.
-
Lifnar aftur við til þess að taka þátt í umræðunum
Það skrítnasta samt við þessa síðu er að hún er ritskoðuð og allt sem er sent inn þarf að vera samþykkt af ritstjórum. Það er ekki gert á Baggalút en samt eru gæðin töluvert betri, enda miklu skemmtilegra fólk hérna.
Ég er nú að vinna með einum strákpjakk sem ég gæti trúað til að skrifa svona, hann er 16 ára og veit ekki neitt í sinn haus, vissi ekki einusinni hvað orðið geislavirkni þýddi og hann hélt að glasafrjóvgun þýddi það að barnið væri ræktað í glasi, hvað er eiginlega að verða um ungdóminn nú til dags.
Smellir á þetta Guð minn góður... var þetta ein málsgrein? Ennfremur, var þetta íslenska?
Ákveður að lesa áfram Jahhá, ekki vissi ég af þessu orði. Nauhh, þessi kann íslensku, til hamingju! Þessi... þessi... veistu, ég held að ég hætti hér.. Lokar glugganum í einum grænum
Ja sveiattann..... ég sem hélt að stafsettningin mín væri slæm. Þetta er nú einn sá allra verst ritaði texti sem ég hef séð. Ég vona að þetta sé ekki dæmigert fyrir æsku þessa lands.
Af bloggsíðu unglingsstúlku einnar (16 ára):
Hæhæ OI mer er sama hvenrig eg skirfa! jesu minn einu, og eg held að eg hafi vandað mig aðeins betur i profinu en herna!, þið eruð að fa ekkað sjok hvenrig eg skirifa sem skirftir feitt engu máKli!
Vinur hennar kvittar í gestabók:
eg kiggi á kerum degi og gái hbvort það eikkað ntyt se ekki komð! sea babí!
Ælir
Þetta kemst nálægt því að vera það versta sem vjer höfum sjeð, sjer í lagi það sem Stelpið vitnaði til. Um skrifin sem bent er á í upphafsinnleggi þessa þráðar höfum vjer það að segja að frekar ætti að banna slík skrif en rjett skrifaða texta er innihalda fjölda kjarnmikilla blótsyrða.
Annars hefur vont mál ávallt verið til. Það er oss ógleymanlegt er vjer sáum eitt sinn orðið samfjelaxfræð (skrifað nákvæmlega svona) á forsíðu ritgerðar er vjer sáum í skólanum er vjer vorum 14 ára.