Er ekki frekar vænlegra að sleppa keðjunum og leyfa fólki að rífast við þann sem það vill?
.
blóðugt rann á rassin sinn
rosalegur skellur
Hún vill fá að klípa í kinn
kemur sér og fellur
Falleg mær og fönguleg
frábær, eins og blóðugt,
leggja varð á lægri veg,
og löðrunga þig snúðugt!
.
Snúðug er og snerta vill
snjalla kalla alla
En asskoti var orðinn ill
Er högg lét blóðugt falla
Berja þig ég bráðum verð
þú blendingur af litum,
bragð af þér er baunagerð,
við betra fólkið skitum.
Skítlegur þú skúrkur ert
(skárri en ekkert? NEITA)
þig pilsaglennu ei geð um þvert
að grýta nokkuð, reyta.
Sendi ég þér löngutöng og langhendu:
kúki þú í buxur besti,
bleyju sofa í - ekkert raus
en stinga þarf að staula, Gesti
að stykki ekki vefja um haus.
Skítkast hér og skratta mál
skelfing á það við mig
Dæmist nú þín dauða sál
djöfull vill hér fá þig.
það er svei mér þruglið offari
þvoglutal tómt mö
þykist svaka svalur toffari
(svei - hér gleymdist ö)
Drullufínt þú dæmir hér,
drulla er þitt skæni,
drull'úr kjafti fúlum fer,
forarsvað ert væni.
Drullar mikill dólgur hér
dusil menna verstur.
Hamast við að hægja sér
hlewagastiR (Gestur)
Farið öll í fúlann pytt
fjandinn hafi ykkur.
Stangast hef við stærri titt
með störukeppni fram í myrkur.
Halda þeir sig hagyrðinga
hugmyndanna forða þrot
Æði slappt til ávirðinga
alltaf þeirra orða pot
Potar sínum puttum í
prúðan neðri enda.
Brynjuklæddur kafar því
karl á milli lenda.
Lendi hér í leðjuslag
löðrung kjöftum gefnir
Dinesen í drulluflag
Djöfull þessi hefnir.
Þið þykist vita allt manna mest
mannvitsbrekkur!
Heiðglyrnir á ljótan hest, [Snupr: of langt milli stuða. Hlebbi.]
hann o'ní tjörupyttinn sest. [Snupr: áherslulaus forliður getur ekki borið höfuðstaf. Hlebbi. P.s. ekkert vopn snýst verr í höndum vegandans er rangt kveðin níðvísa. Þá beinist hláturinn að röngum manni.]
Lendi hér í leðjuslag
löðrung kjöftum gefnir
Dinesen í drulluflag
Djöfull þessi hefnir.
.
.
Hefna fyrir hundavað
Haf af sljóum orðum
Ætl'ann graður geri það
giska á að fari í bað
.
Hefna fyrir hundavað
af illa brýndum orðum
horfir stórum augum...
.
Hefna fyrir hundavað
af illa brýndum orðum
horfir stórum augum...
Þú svindlar, var í miðjum breytingum...
Heiðglyrnir skrifaði upphaflega [Snupr: þetta h getur engan vegin borið stuðul, þóitt feitletrað sé því það setndur í áherslulausri stöðu. Hlebbi.]
heimsins mesta bull
hann skrifaði heimskulega
hálfvitalegt sull.
Heiðglyrnir skrifaði upphaflega
heimsins mesta bull
hann skrifaði heimskulega
hálfvitalegt sull.
.
.
Sull í rýrum hefur hann
heila Don De Vito
Ekkert veit og ekkert kann
elta mætti og setja í bann [Misnoktun lyklavalda: eflaust mætti setja í hann. Hlebbi.]
Banna þig ætti á Baggalút
og berja með þungu járni.
Á kjaftinn ætti að hnýta hnút
og höggva með bárujárni.
Svo að þú kveljist, muhahahahahahahaha.
Úú hey, Vito, ógó kúl,
"æðislega" kveðið!
Þú átt skilið þrælkun, púl,
þitt brageyra er freðið.
Jájá ég veit, fylgdi ekki keðju, en mig langaði bara að segja þetta.