Heppnin er með yður í dag, kæru Baggalýtingar, því ég, Dr. Goggur Blöndal, hef frætt mig um DNA heilun.
Með henni get læknað hvaða kvilla, fjarlægt hvaða æxli og heilað hverja tánögl á skjótan og skilvirkan hátt. Já kæru vinir, þetta er ekkert plat. Munið bara að borga með ca. viku fyrirvara.
Var þetta ekki bara eitthvað vikunámskeið?
Hey Don. Skottulækningar í bréfaskóla er fullgilt nám !
Ég hef fulla trú á doktornum.
Pantar tíma í sílikon.
Ég þarf ekkert á þessu að halda hvort eð er. Ég er svo fullkominn.
Gæti ég fengið hálfun?
Ekkert mál, ég rabba bara aðeins við stofnfrumurnar þínar...
Tengist 'heilun' heilabúi á einhvern hátt ? Og er þá hálfabú í hálfvitum ? Starir þegjandi út í loftið
Láttu ekki svona, þetta er ekki svona hátíðlegt.
Öö, því miður, ég get ekki talað við tröllkarla...
Bíddu þangað til Dr. Zoidberg nær klónum í þig fyrir þessar skottulækningar. Hann mun eyrnamerkja þig eins og sauð í Suður-Þingeyjasýslu.
Mig vantar að losna við kíli á rassinum, er ég á rétta staðnum?
Goggurinn er sérfræðingur í að sjúga kýli af rössum.
Bíddu þangað til Dr. Zoidberg nær klónum í þig fyrir þessar skottulækningar. Hann mun eyrnamerkja þig eins og sauð í Suður-Þingeyjasýslu.
Hugsar til fallegu eyrnanna sinna Ahh! Það vil ég engan veginn... það hlýtur að vera hægt að efna til samstarfs einhvernveginn...
Kæru Vinir,
Ég vill vinsamlegast leggja smá orð í belg varðandi umræðuna um tilvist DNA og DNA heilun. Eins og mér skilst þarf DNA til að tengja vitund okkar við matrixuna, eða The Matrix eins og fjallað er um í Matrix kvikmyndunum. En DNA er einfaldlega ekki til! Þar af leiðandi er engin ´heilun´að eiga sér stað þó að einhver fari og láti ´heila´DNA ið í sjálfum sér. Þegar mér líður illa reyni ég að láta mér fyrst líða vel og svo líður mér vel á eftir. DNA - ið í mér er ekki að verki heldur meðvitund mín. Þyngdaraflið bindur meðvitundina við alheiminn og þar af leiðandi er DNA þráðurinn eða þræðirnir tóm blekking. Ég sá þættina Threshold í sjónvarpinu, náði bara að sjá tvo þætti því mér fannst þeir vera þvílík arfavitlaus arfaþvæla. Í þáttunum voru geimverur sem voru í raun tvöfaldur DNA þráður, og þar með fjórir DNA þræðir. Geimverurnar ætluðu að blanda erfðaefni sínu í fólk til að búa til betri líkami.
Svo erfði fólkið styrkleika þeirra en vantaði alla andlega vitsmuni og þá uppgötvuðu geimverurnar að DNA ið í sjálfum sér væri í raun tóm blekking. Þær brugðust ókvæða við, og ákváðu að neita sannleikanum sem þær höfðu komist að um sjálfar sig. Þar af leiðandi getur DNA sem slíkt ekki verið til m.a. vegna þess að sannað hefur reynst að erfðaefnið er stöðugt að breytast frá sekúndubroti til sekúndubrots. Í kvikmyndinni Altered States fór sálfræðingurinn M. K.Jessup í tímaferðalag í vitund sinni til daga frummannsins. Hann gat upplifað sjálfann sig sem frummann og gat drepið og étið geit og ferðast með blóð hennar til baka í sinn heim. Svo þegar hann var staddur í tanknum allan tímann, þá áttaði hann sig á því að hann hafði í raun aldrei farið neitt. Sá eini sem vissi sannleikann var skeggjaður geðlæknir kominn ennþá lengra en hann sjálfur í heilaskurðlækningum. En skeggjaði, feiti geðlæknirinn hylmdi líka yfir öllum sönnunum sem Jessup gat notað til að staðfesta kenningu sína um að flytja megi erfðaefni fram og til baka í rúm og tíma og breyta að vild.
Svo breytir hann erfðaefni sínu og endurskrifar það og verður fyrir vikið að forföður Neanderdalsmannsins. Niðurstaðan er misheppnuð tilraun með gersamlega ófyrirsjáanlegar afleiðingar. M.ö.o. forfeður Neanderdalsmannsins sem lifðu fyrir 1500000 árum síðan og M.K.Jessup voru fastir í sömu blekkingunni og sá sem vissi það var enginn annar en Brujorinn sem lét Jessup fá svepinn sem gerði honum kleift að ferðast til baka. Jessup sá verur sem voru hálfir menn og hálfar kindur sem gáfu honum kraftinn til að ferðast til baka og sjá allt sem hann átti eftir að upplifa, og síðan þegar hann var búinn að þessu öllu fékk hann nóg fyrir rest. Þannig endaði myndin. Nú, eins og við sjáum, er hvergi betur hægt að lýsa starfsemi DNA en einmitt í Hollywood kvikmynd. Þar af leiðandi er DNA þræðirnir sjálfir tóm blekking. Geimverurnar í Threshold og aparnir í Altered States þjáðust af sömu skynvillu, eini munurinn var sá að J.K.Jessup var kominn lengra, en feiti sálfræðingurinn lengst! DNA ið er sjónhverfing og þar af leiðandi er DNA ´heilun´ekki til sem möguleiki nema í huga þess sem kýs að trúa að hún sé til.
Í kvikmyndinni Terminator 3 gat Tortrímandinn tekið sjálfstæða ákvörðun án mennsks taugakerfis - og þar af leiðandi án þess að hafa DNA. Ef hann gat það getum við gert það líka, og þar af leiðandi þarf fólk sem kallar sig ´starseeds´ekki lengur að segja að það sé komið af geimverum, því það getur afskrifað erfðaefnið í sjálfu sér og skrifað það svo aftur upp á nýtt eftir þörfum!! ´Geimverurnar´sem eru að gera öll brottnámin neyðast til að endurskilgreina sýstemið hjá sér upp á nýtt því þær eru ekki með neitt DNA, bara sjónhverfingu eða skynvillu sem þær halda að sé DNA!
M.ö.o, allt tal um DNA - bull og þvættingur. Það er hægt að sanna ´tilvist´DNA með nákvæmum athugunum og rannsóknum, en það sem menn halda að sé ´sannað´eru í raun einungis almyndir. DNA virkar eins og óendanleg runa af spegilmyndum sem sjást í sumum speglum - maður heldur að það séu til margar útgáfur af manni sjálfum, sem er vissulega rétt, en í öllum útgáfunum er maður í raun einungis almynd, eða hologram, en ekki DNA, en ef fólk vill blekkja sjálft sig og vera áfram háð eigin erfðaefni má það alveg vera apamenn eða varúlfar eða vampírur eða Sjálfstæðismenn eða Framsóknarmenn eða kjósendur eftir þörfum. Það er ekkert DNA, þetta er allt skynvilla, sorrý Kári Stefáns, ekkert DNA. Bæ bæ Íslensk Erfðagreining, bææææææ.
kær kveðja,
Þorgils Gjallandi,
Af hverju er ekkert að gerast á þessum stað meira? Eru allir orðnir hræddir um að þeir séu í raun ekki til eða hvað?
kær kveðja,
Úlfamaðurinn (hlær og glottir í tungsljósið)
Ég VEIT að ég er ekki til - veist þú eða ertu ennþá efins?