Hvað er í gangi? Bráðlega hefur enginn párað neitt í hálftíma!
Þetta tekur á taugarnar maður..!..
Usss.... , ekki þennan hávaða. Fær sér lúr
Ég var einmitt að velta því fyrir mér hvernig ég gat yfirgefið vefinn í klukkutíma og aðeins bættist við eitt innlegg á þeim tíma, sérstaklega þegar ég tók mið af þeim fjölda sem innskráður var þegar ég leit við aftur.
Geispar og glápir bara á skjáinn
Er ekki hreinlega „Þegnskylda" að tjá sig.!..
Iss nei. Mestu máli skiptir að innihaldið sé ríkulegt. Einhver sagði að þögn er gulls ígildi. Ekki hefur heyrst meira frá þeim manni reyndar
Fólk þarf nú að komast á klóssettið við og við, hinsvegar er það mjög undarlegt þegar svona margir fara á sama tíma !
Ég hef áhyggjur af Gestapó.
Hefur áhyggjur af Gestapó
Það þykir merki um þroska að þegja á réttum augnablikum, svo virðist sem í gær hafi komið langt slíkt augnablik.
horfir á hina
Ég er farinn að halda að þessi þagnarskylda í gær hafi borið árangur. Hér er allt vitlaust að verða. Hugmyndir svo annarlegar að manni býður við og á sama tíma svo fagrar að fegurstu stærðfræðisannanir verða sem hjóm eitt.
Horfir í kring um sig, sér samsæriskenningar bruggaðar í hverju skúmaskoti