http://www.freewebtown.com/lordjonsson/
Þarna er á ferðinni netgáta sem virkar þannig að þegar þú startar leikinn átt þú að finna lausnina á þrautinni á hverri blaðsíðu og bæta þeirri lausn fyrir aftan urlið. Ef textinn er óskiljanlegur gæti verið að ef þú færir í page source kæmi annar bútur í púslið.
Þetta reynir verulega á mann sumt af þessu og gaman að sjá ef einhver hérna á lútnum getur ekki fundið lausnina. (Þ.e.a.s. ef einhver nennir þessu.)
Starir þegjandi út í loftið
Emmm... ég fatt'ekki...
Er fastur
Hmmm, hvernig veit maður hvenær maður er búinn - ég er kominn með einhverja ógurlega langloku...
Er fastur
Hmmm, hvernig veit maður hvenær maður er búinn - ég er kominn með einhverja ógurlega langloku...
Er ekki alveg með það á hreinu, er ennþá pikkfastur.
þó ekki á 60?
Ég nördaðist aðins í gær og fann "orð" á gátu nr 8. eða svo (næsta á eftir 60 - hint fyrir það: Gúglaðu eins og vindurinn!).
Þetta helv. orð kemur mér samt ekki á næsta borð - mér finnsr eins og helvítið sé bara að hlægja að mér.
Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Ég nördaðist aðins í gær og fann "orð" á gátu nr 8. .....
Gátu nr. 8 ? Hrökklast aftur á bak og hrasar við ég réð ekki gátu númer eitt. Brestur í óstöðvandi grát
Ég fatta þetta ekki.
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Vá, ég er alveg föst á My name is Earl.
Vísbendingar?
Búin að finna þáttinn og Pulled fire alarm dótið... skil ekki hvað ég á að gera við það.