Hefur einhver séð Sigur Rós á tónleikum, ef svo er þá má hann segja frá hvort að það hafi verið gaman eiður ei og auðvitað lýsa því.
Ertu að tala um Sigurð Rósmundar harmoníkkuleikara?
Frábær karl. Hann þenur nikkuna á nær djöfullegan hátt og grípur áheyrendur með léttum slögurum eins og Undir bláhimni. Mæli með tónleikum hans.
Ég fór á mjög magnaða tónleika með Sigur Rós árið 1999 á Hótel Selfossi. Mjög litlir og kósí en höfðu samt mjög sterk áhrif á áheyrendur.
Sá þá síðan fyrir 2-3 árum í Laugardalshöll, vissulega flott en samt náði maður engan veginn sömu tengslum við tónlistina.
Söngvari Sigurrósar er eini maðurinn sem skilur Loðinn og getur talað við hann. Hans Óli er bara að blöffa.
Ég hef aldrei séð Sigur Rós á tónleikum en ég hef það fyrir satt að þeir séu vinsælir meðal hvala.
Ég hnusa alltaf út í loftið þegar þeir hefja upp raust sína. Ég held alltaf að það sé kviknað í og slökkviliðið sé á leiðinni. En þá er það bara þessi mjóróma sönglari þeirra að reka upp org.
Nei en langar soldið veit ekki af hverju já pínu pons smá
Ég hef farið á tónleika þar sem Sigur Rós var upphitunarband. Þeir voru að hita upp fyrir balkneskt stuðband, líklegast bandið sem spilaði í myndinn Svartur köttur hvítur köttur, eitthvað skylt bandinu sem spilaði í myndinni Underground.
Það er skemmst frá því að segja að ég sofnaði þegar Sigur Rós voru að spila enda gerðu þeir ekkert annað en að spila Bíbí og blaka afturábak hundrað sinnum.
Ætlum við sumsé að ræða þetta hér ?
Man þá gömlu tíma þegar Sigur Rós var SigurRós
-
Ég man hins vegar eftir Victory Rose sem lékk rokk. Seinna breyttist hún í SigurRós
Ég sá Sigurrós líka á Selfossi '99.
Stekkur hæð sína
Ég sá Sigurrós líka á Selfossi '99.
Stekkur hæð sína
Sex árum seinna og enn hoppandi af gleði! Þetta hafa verið þolanlegir tónleikar.
Ég var meira svona að fagna því að hér er fólk sem var þarna líka. En jú, það var voða gaman.
Ég fór á Sigurrós tónleika í Háskólabíó 19. október árið 2000.
Þeir voru mjög góðir, en ég er samt hættur að hoppa af gleði vegna þeirra.
Svo á ég 2 miða á tónleikana í kvöld ef einhver hefur áhuga á að fá þá á góðum kjörum...
Vér höfum verið bæði á sviði og við sviðið á tónleikum með því eðla bandi. Víst er að það er engu líkt.