Samkvæmt forsíðu Baggalúts er erfingi Baggalútssamsteypunnar (og jafnframt frelsari heimsbyggðarinnar en það er reyndar ekki nærri jafn mikilvægt hlutverk) fæddur. Óskum vjer Enter og fjölskyldu hjer með bæði formlega og opinberlega til hamingju.
Þetta eru gleðitíðindi og gott tilefni til að skála... xT Skál ! xT Sýpur á fagurbláum drykk
Færir Enter og erfingjanum 10.000 tonn af ný-últrakóbaltsdufti og 5 tonn af plútóníum ásamt gulli, reykelsi og myrru
Óska Enter til lukku með erfingjann.
Enter og fjölskylda, til hamingju með nýja fjölskyldu-meðliminn. Þess óskar ykkur af heilum hug, Heiðglyrnir Hinn Hugdjarfi.
Til hamingju hér líka!
Hvernig gengur með að ákveða nafn annars? Stígur tvö skref til hægri svo sjáist í ljósaskilti sem stendur á LITLA stórum stöfum
Litla er sko bara til að kalla hana fyrst...svo má hún heita Helena, Norna eða Tigra mínvegna...spurning hvort nefndin samþykki samt.
Til Hamingju hér líka................ Erum við að hefja ár 0 eða 1 ?
Til hamingju Enter, megi framtíð erfingjans verða jafn góð og björt og hjá þér. xT
Megi erfinginn hafa það sem allra allra best, sem og foreldrarnir.
Kemur inn með gull reykelsi og trommusett.
Afsakið mig, en ég bara fann ekki mirru.
Svo hefur króginn eflaust meira gaman að trommusetti.
Hugheilar hamingjuóskir með stúlkubarnið Enter minn. Megi móður og mær heilsast sem allra best. Hún verður sannarlega leiðtogi framtíðarinnar.
Býður Enter 20 ára framvirkan samning á giftingu dótturinnar við rétt valin dreng af Hakuchiættinni. Lofar 25% heimanmundi með veði í krúnujörðum Baggalútíu
Skál! xT
Hvernig gengur með að ákveða nafn annars?
Er ekki vissara að nefna króann einhveju álíka kunnulegu .Ctrl eða Tab kannski ? Er eins og fífl
Annars óska ég ykkur auðvitað innilega til hamingju.
Innilega til hamingju með telpuna, kæri Enter. Börn eru æ til yndis.
gefur litlu telpunni sundnámskeið
Til hamingju aftur og síðan þúsund sinnum í viðbót. Gefur stúlkunni fyrstu tölvuna svo að hún geti byrjað að skrifa inn fréttir á Baggalút og tekið þátt í samræðum á Gestapó
ljósaskipt hamingju ósk til samsteypunnar sem tryggir sjálfa sig hjá sjálfri sér.
Bagalúíja Gestapósanna Heimmsvasanna
Alltaf gaman að heyra svona fréttir. Hér er vissulega um heimsögulegan atburð að ræða.
Færi Enter og fjölskyldu heilla og hamingjuóskir frá konungsríki köngulóarapanna.
Hélt að hann væri alltaf að vinna. Klórar sér í höfðinu