Innilega til hamingju herra Enter, og frú.
Hjartanlegar hamingjuóskir berast frá sérlegum fulltrúa ykkar í Danmörku.
Þá bað danska þjóðin öll fyrir sérstökum kveðjum með hinni mestu auðmýkt og gleði í hjarta.
Er það von allrar Evrópu að barni og móður heilsist sem best og að stoltur faðirinn hafi það sem allra best.
Vil ég svo biðja heimsbyggðina alla um að sameinast í fjórfallt húrrahróp að sið Baggalúts.
Húrra,
húrra,
húrra,
HÚRRA !
-
HÚRRA! HÚRRA! HÚRRA!
Ég óska barni, móður og föður góðrar heilsu. Já og Enter líka.xT
Yggarz ættin er öllsömul glöð í tilefni frelsunarinnar, enn þann dag í dag.
Mannfólk til hamingju með gærdaginn.
Enter og móðir og stúlkubarn, til hamingju.
stúlka stalst inn í heiminn
sterkur Enter verður feiminn
Til hamingju með barnið! Vona að móður og barni heilsist vel og faðirinn sé ekki alltof slappur.
Færir stúlkunni bleikan Teletubbies dvd
Vjer stofnuðum þráð um þetta í Vjer ánetjaðir í gær en sjaldan er góð vísa of oft kveðin. Endurtökum vjer því hjer með hamingjuóskir vorar í þessum þræði og notum tækifærið og komum með enn meiri gjafir Kemur með enn meira kóbalt, plútóníum, gull, reykelsi og myrru. Óttast að aðsetur Enters hverfi undir fagurblátt kóbaltduft ef vind hreyfir.
Innilegar hamingjuóskir Enter. Vona að barnið verði verðugur arftaki.
Ég sendi Enter og frú mínar innilegustu hamingjuóskir með dótturina. Þið megið hóa í mig þegar þið þurfið að láta skíra, ég læt ykkur fá afslátt.
Sérlegar hamingjuóskir.
Holland reis í dag um einn cm í tilefni þessa merka atburðar, samkvæmt nýjustu mælingum.
Sendir hamingjuóskir. Sendir nokkur ský sem koma sér fyrir á veggjum barnaherbergisins
Það gjörðu Feneyjar líka hef ég heyrt. Til hamingju! Erfingi heimsveldisins er fæddur!
Sérlegar hamingjuóskir.
Holland reis í dag um einn cm í tilefni þessa merka atburðar, samkvæmt nýjustu mælingum.
Það gjörðu Feneyjar líka hef ég heyrt. Til hamingju! Erfingi heimsveldisins er fæddur!
Hmm... er þá hægt að ganga milli húsa í Feneyjum og er þá Afsluitdijk ekki orðið gersamlega fáránlegt á þurru landi?
Já til hamingju, gott að náttúran er svona sterk í honum Enter okkar.
xT