Gott kvöld. Ég heiti Hermundur Frotté. Gleður mig að kynnast ykkur.
Komdu skilyrt sæll og blessaður Hermundur. Mér líkar við nafn þitt. Það er skárra en Enter.
Ertu eitthvað skyldur Sloppi?
Vjer bjóðum yður velkominn hingað með fyrirvara Bætir nafni í listann yfir þá er eigi er vitað hvort teljist til óvina ríkisins eður ei.
En góð spurning - hvað ætli hafi orðið af Sloppi ? Rænt af óvinum ríkisins eða dæmdur í ævilangt fangelsi ? Rannsakar gögn frá FESTR (Fangelsaeftirlitsstofnun ríkisins)
Ekki kannast ég við téðan Slopp en við erum að öllum líkindum úr sama efni þannig að skyldleika skal ekki afneita fyrr en sönnun hefur borist þess efnis.
Velsaður Fermundur Hrotté og bleskominn.
Hmmm.......horfir rannsakandi á Hermund Frotté og potar aðeins í hann með priki.... til að kanna viðbrögð
Velkominn, við sjáum til hvernig þú átt eftir að standa þig.
Frotté, er það franskt, skylt Paté?
Nei, Paté ættin eru okkar mestu óvinir! Við Frotté menn höfum háð marga baráttuna við þá í gegnum tíðina og ávallt haft sigur. Paté ættin er óttalega lin en við Frotté menn erum slitsterkir og lífseigir.
Velkominn Gáir að silkisloppnum
hæ
Rosa ert þú líkur mér, höfum við verið saman í prófkjöri
Nei, ekki svo ég viti. En af hverju er þessi tómlega mynd af þér höfð á okkur báðum? Ég verð að gerast myndarlegri.
Nei, ekki svo ég viti. En af hverju er þessi tómlega mynd af þér höfð á okkur báðum? Ég verð að gerast myndarlegri.
Þá ætti að vera hentugt fyrir ykkur tvo að kíkja á þetta, ef þið eruð ekki búnir að því
En dýrlegt nafn...
Hermundur Frotté = Hund, mer, Fé, rottur
Afskaplega er myndasafnið takmarkað hjá henni ritstjórn
Afskaplega er myndasafnið takmarkað hjá henni ritstjórn
minna má nú sjá. Nei annars, smá grín - annars myndi ég vera snöggur að fá mér aðra mynd ef ég væri þú, fjólubláir gestapóar endast alveg svakalega stutt hérna.