Jæja, þá hefst nýr leikur.
Hér er um að ræða gátu.
Spyrill lýsir sérstæðum sögulokum og lesendur eiga að reyna að komast að því hvað olli þeim.
Reglurnar eru hefðbundnar: Aðeins já- og nei-spurningar. Spyrill getur líka sagt til um hvort spurning komi gátunni beinlínis við.
Og hefst nú gátan:
Maður nokkur liggur nakinn í eyðimörk með eldspýtu í hendinni. Hvað gerðist?
Var hann var við vinnu í Írak og ákvað að kveikja í flugeld hjá Olíudælunum. Sem endaði svo með fyrrgreindum afleiðingum?
tengist hann eitthvað við fíkniefni?
er hann hommi?
Hneigist hann til timburs?
Nei og nei, nei, nei.
Alger óþarfi að spyrja svona mikið í einu, er það ekki?
Þið kannist náttúrlega við það, þegar að hlauparar og annað íþróttafólk ber ólympiu kyndilinn frá Grikklandi og til þess lands sem heldur Ólympíuleikanna. Allavega það sem fæstir vita og tengist það því að ólympíuleikarnir eru haldnir 4 hvert ár er útaf því að það er nakinn hlaupari með eldspýtu og þarf hann að hlaupa umhverfis jörðina með þessa eldspýtu til að kveikja eldinn í Grikklandi svo að þeir geti svo farið með Ólympíueldinn eitthvert annað.
Er hann þessi maður?