Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer neitum alfarið að gerast heiðurfjelagi hjer ef nafn vort innan klúbbsins þarf að byrja á H.
Og ég sem ætlaði að leggja til að þú fengir þér dulnefnið Herr Flick... Starir þegjandi út í loftið
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer neitum alfarið að gerast heiðurfjelagi hjer ef nafn vort innan klúbbsins þarf að byrja á H.
Nafn innan klúbbsins er gælunafn, svona til að öllum finnist þeir eiga þar H-eima. Þér fáið að velja það sjálfur (persónulega finnst mér nafnið sem Hexía stakk uppá snilld). En öllum er H-eimilt að velja H-vort þeir vilja vera með eður ei. Snýr sér að Hexíu Sæl kæra vina, H-vernig reynist sleifin?
Sleifin er guðdómleg! Mallar undravert kakó máli sínu til stuðnings
Sem yfirmaður Myrkraverkadeildar þá legg ég til að blóðugt fái inngöngu í H-menningarklúbbinn af því hún er rauð.
Einnig legg ég til að að heiðursnafn hennar verði Hemoglobin
Sækir töflutússið og bætir við á skiltið:
Eftirtaldir hafa verið samþykktir sem H-eiðursgestir þessa klúbbs.
Don De Vito Höskuldur umsjónarmaður félagsheimilis H-menningarklúbbsins, gegn því að H-menningarklúbburinn fái frí afnot af Hringleikahúsi Baggalúts fyrir stórsamkomur í framtíðinni.
Ívar Sívertsen Hexíus Sjálfrennireiðameistari.
Lærði-Geöff Höffi Lýsinga og stigameistari.
blóðugt Hemoglobin Starfsmaður myrkraverkadeildar.
Sleifin er guðdómleg! Mallar undravert kakó máli sínu til stuðnings
Gefur frá sér vellíðunarstunu Ohh, mikið er ég ánægð. Aðeins það besta fyrir þá bestu. Réttir fram bollann sinn og horfir með eftirvæntingu á Hexíu
Kíkir í frystinn og les upp hvað er þar.
3 Færeyingar, hákarl, 5 sjálfdauðar kindur, 1 pottaplanta, 20 kg af súkkulaði, 1 poppkorn,
2 maisbaunir og 700 ísblóm.
Hver stal úr frystinum mínum ?
Verður voða pínu reiður.
Vér nöppuðum einum Færeying og tveimur pottaplöntum fyrir sérlegt G-teiti...
Usss, lastu ekki þráðinn? H-teiti er það eina sem yrði haldið hér... Fussar og sveiar yfir hvað sumir eru tillitslausir
Hver mælti svo fyrir um að Hið sérlega G-teiti yrði Hér? Það verður Haldið á botni VatnsdaHls-ár, þeirri Hlið er niður snýr.
Vér vorum bara að tilkynna Hvað orðið Hefði um Hluti þá eru Hurfu úr frysti Hvæsidillumeistarans.
En þér, kæra Hundslappadrífa, til Heiðurs, munu öll mín H í uppHafi orða vera H-stafir. Hér á þessum þræða, að minnsta kosti. Og það þrátt fyrir ákafa ást vora á lágstöfum. tekur ofan, Hneigir sig og gengur Hljóðlega út
Nuddar stírurnar úr augunum og les aftur Já þannig... H-ugsar sig um Það þarf nú nokkra hæfileika til að ræna hvæsa... má bjóða þér H-eiðursmeðlimatign? Innifalið er starfsheiti og sérlegt gælunafn sem byrjar á H.

snýr við í dyragættinni Já, Hví ekki? Það þætti oss mikill Heiður.

Býður gregory að velja sér starf og gælunefni
Býður gregory að velja sér starf og gælunefni
gælunefni : Hentistefnir
starfsheiti : Hugmyndasmiður og almennt kvikindi
- gengur það? lítur spyrjandi, með annað augað í pung, á Hundslappadrífu
Sækir töflutússið og bætir við á skiltið:
Eftirtaldir hafa verið samþykktir sem H-eiðursgestir þessa klúbbs.
Don De Vito Höskuldur umsjónarmaður félagsheimilis H-menningarklúbbsins, gegn því að H-menningarklúbburinn fái frí afnot af Hringleikahúsi Baggalúts fyrir stórsamkomur í framtíðinni.
Ívar Sívertsen Hexíus Sjálfrennireiðameistari.
Lærði-Geöff Höffi Lýsinga og stigameistari.
blóðugt Hemoglobin Starfsmaður myrkraverkadeildar.
gregory maggots Hentistefnir Hugmyndasmiður og almennt kvikindi.
Vér þökkum kærlega fyrir vora parta. Hneigir sig
Spáir í hvort síðasta setning hafi verið klúr Parta... æji ég er orðin rugluð af svefnleysi.