Éta meira magrir gjarnan vilja,
sjúkra manna sára neið
sumir alldrei skilja.
Kjánalega klauf ég af mér neglur.
Axarnotkun um ég vil
að einhver setji reglur.
Reglulega lá við illa færi;
það er helbert hættuspil
að hlaupa um með skæri.
Skæruliðar læðast nú á tánum,
kliðinn heyra kasta sér
og kikna nú í hnjánum.
Hnén undan hælkróknum féllu saman,
kappinn mikli keikur hló
kynlegur var'an í framan.