— GESTAPÓ —
Vikhendukeðja
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 14, 15, 16
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 24/5/06 14:46

Éta meira magrir gjarnan vilja,
sjúkra manna sára neið
sumir alldrei skilja.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Loki 26/5/06 20:56

Skiljanlega skaut ég mig í tána;
byssunotkun ekki er
ætluð fyrir kjána.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Kynjólfur úr Keri 28/5/06 13:21

Kjánalega klauf ég af mér neglur.
Axarnotkun um ég vil
að einhver setji reglur.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Loki 28/5/06 15:38

Reglulega lá við illa færi;
það er helbert hættuspil
að hlaupa um með skæri.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Kveldúlfur 28/5/06 16:20

Skæruliðar læðast nú á tánum,
kliðinn heyra kasta sér
og kikna nú í hnjánum.

Ekki stíga svona fast í vitið, þú gætir hrasað.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst

Hnén undan hælkróknum féllu saman,
kappinn mikli keikur hló
kynlegur var'an í framan.

LOKAÐ
        1, 2, 3 ... 14, 15, 16
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: