Ruddi einn með ráðum vildi semja
prinsessu úr pilsi hratt
píku skildi temja
Ath. Nafni, þó vísan sé góð er hún ekki alveg rétt, það verður að vera stúfur í síðasta braglið annarrar línu til að um vikhendu sé að ræða. Geri ráð fyrir
Ruddi einn með ráðum vildi semja
prinsessu úr pilsi, því
píku skildi temja
Af kvennabósa einum:
Tamið hefur tugi mætra kvenna
fíflaði, en fékk svo nóg
fleiri ef myndi nenna
Nenni ekki neinu í dag af viti
vesen þetta og voðalegt
vísu þó ég riti.
Rita mína ræðu undir fjalli.
"Hættu þessu hangsi fífl!"
-Held að stjórinn kalli
Ógeðslega alltaf finnst mér gaman
gæla soldið gump einn við,
girnist það að framan
Framan undir fimmvörðunnarhálsa
Heyrist lítið heilagt garg
í himbrima þeim frjálsa
Frjálsan anda fangar ekki helsi
Úrval vista veglegt er
Vitrænt bakka-elsi.
.
.
Úff, fyrsta tilraun. (takið viljan fyrir verkið)
Bakkelsi og brúnterta með rjóma,
og fögur mær með feikna barm,
fá mig til að ljóma
ljóma upp af lostafylltum bríma
skveraðar í skyndingu
skríkja svo- og kíma
Kímni það að kúka oft í brækur?
Fyrir mér er feimnismál
færi ei í bækur.
Bækur sem að bókaormar naga
Fara vel í huga og hönd
heimsbókmenntasaga
,,Nennir þú að ná í meir´af bréfi?"
Hægðir var að hafa nú
held að undan gefi.
Gefi á bátinn Grænland við að hausti
sveinar vaskir sjá þá að
sigla ber að nausti.
Ægifagurt er nú tunglið hvíta
móð og æst þá meyjan skalf
meðan úlfar bíta.
Beiti öllum brögðum eins og refur
múta, hóta, myrði, lem
mikið bros mér gefur.
Látinn gráta grútarámu tóma
Gutlar ekki gorið nú
galtómar þær hljóma.
Hljóma lög í höfði mínu og pína
Stundum til að stöðva þau
stuðla má í rína.
Rínar-áin rennur gegnum landið
ekki þarf þá orða meir
ykkar svör nú vandið.
Þetta er lykilvísbending í vísnagátunni minni, hahaha
voðalega er ég sniðugur