Komdu sæll Limbri Moðar. Hér er gott og gaman að vera, þegar skyldan kallar ekki á mig.
Ég er með flottari barta en allir á Gestapó til samans!
Salka hafði gaman af sögunum um Jóakim Aðalönd. Hann lifði viðburðaríku lífi. Hann var og er jafnvel enn víðförull.
Sæl Salka og velkomin vertu. Hefuru kíkt á Næturgöltinn ?
Réttir fram arminn og býður á Göltinn
Sæll hvæsidillumeistari! Ég sá Næturgöltin áðan á rölti mínu. Hann er rauður og lýsir upp Gestapó. Salka vill gjarnan kom með í þinni fylgd.
Hneigir sig og labbar af stað á göltinn með Sölku upp á arminn.
Salka kom auga á hagyrðinga-verksmiðju. Ljómar upp
Salka er í eilífri endurnýjun og aðlögun á nýjum stað. Stígur varlega til jarðar, horfir í kringum sig og fylgist með.
Vertu velkomin Salka, megirðu eldast vel og lengi, þó ekki hratt. Rifjar upp gömlu tímana, nánar tiltekið september sl.
Þakka þér fyrir Lærði-Geöff.
Ég er uppalin með fjöllin og dalina og hafið í kringum mig. Þar sem vetur tekur við af hausti.
Hraðinn er mikill og hér er ég ekki enn komin í takt við tímann.
Já er mætt ný dama á Gestapó og enginn lætur mig vita ?
Snyrtir bartana smá
En hérna, sumsé, já, komdu sæl Salka. Ég heiti Limbri Moðar. En það kalla flestir mig Limbra. (Þó svo sumir berjist við að uppnefna mig Limra.)
Vonandi muntu hafa það sem best hér með okkur.
-
Ræskir sig smá
En já velkomin Salka Brosir góðlátlega
Þakka þér fyrir Litla Laufblað.
Limbri Moðar er hann þinn maður?
Hóst Ég er með eitthvað korn í hálsinum, hafðu mig afsakaðaHóst hóst
Losnar við kornið úr hálsinum Æ takk, en það viðist hafa komist í augað á mér núna...ef þið vilduð afsaka mig aftur.
Fer í læknaslopp, setur upp bleika gúmmíhanska, tekur pizzahjól í hönd og skellir kokkahúfunni á hausinn
Ekkert mál, við reddum því.
Setur sig í stellingar
Þetta er allt í lagi Stígur in í næstu vindkviðu og fýkur burt
Hnyklar vöðvaleysið sitt og setur upp svöl sólgleraugu
Eru ekki allir í hressri stemmningu hérna ?
-