007 getur tekið á sig mörg dulargervi James Bond er bestur!
Hann lítur út eins og einhver Dani, ekki Breti!
Þetta þýðir bara eitt í mínum huga. Bæ bæ Bond.
Ég sagði það áður, ég segi það aftur; Robert Carlyle hefði verið flottur Bond!
Ef ég hefði fæðst breskur hefði ég verið bestur í hlutverkið.
Mér fannst hann reyndar fínn í fyrstu Tomb Raider myndinni en hann er allt of sjúskaður til að vera Bond, Bond er glæsimenni, ekki tuskuleg blondína.
Já... við ættum kannske ekki að dæma hann of hart fyrr en við sjáum hann í hlutverkinu... kannske verður hann frábær.... Ljómar upp
Ef maður hefur litlar væntingar verður maður ekki fyrir vonbrigðum. Það hef ég alltaf sagt.
Já. Þetta er heldur löðurmannlegt val. Í það minnsta er ekkert við manninn í útliti sem fær mann til að segja: Já þetta er Bond!
Ég veit hins vegar að hann er fjandi góður leikari, var fínn í Road to Perdition. Hann á því skilin séns en hann þarf virkilega að vinna fyrir peningunum sínum til að sanna að hann sé drápari úrkynjuðu drollunnar.
Það er lítið mál að laga hann aðeins til svo hann verði glæsimenni.
Gefum Daniel Craig smá séns áður en við höggvum hann í spað. Kanski ekki aveg idelal Bond, en það voru verri tillögur um Bond
Látum hann bara lita á sér hárið og fara í húðstrekkingu þá verður hann örugglega fínn.
Það var nú verið að tala um Jude Law á tímabili. Sem mér finnst blátt áfram fáránlegt, einhver lítill stráklingur í hlutverki James Bonds. Svo þegar það var farið að tala um Collin Farrel þá hugsaði ég með mér að núna væri þetta alveg búið, James Bond yrði ömurlegur. Ég mótmæli þó ekki að Collin sem myndalegur og afar getnaðarlegur, en enginn Bond. En ég er samt alveg sammála voff með Robert Carlyle, hann hefði orðið frábær.
Það vill nú stundum gleymast að ég hef líka leikið James BondRoðnar og rifnar af monti
Það var þegar Leikfélag Ýsufjarðar og nærsveita setti upp leikritið "Njósnarinn og auðkýfingurinn", sem byggt var á skáldsögunni "Goldfinger" í leikgerð Hásteins barnakennara.
Við lékum fyrir fullu húsi einar 5 sýningar. Ég var sjálfur í hlutverki njósnarans Jakobs Bond og Ragnar á Brimslæk lék bófann Gylfa Gullfingur.