Já og velkominn..... Jonni sæti var það ekki?
Með litlum staf Ísdrottning, litlum staf.
Ætlarðu næst að skrifa Ísafjörður með litlum staf hneyksluð
Síðast er vjer vissum voru Vestfirðir í NORÐURátt frá suðvesturhorninu.
Allar leiðir liggja til Rómar ERGO við förum norður á Strandir, vestur á firði (nema um sé að ræða austfirðina, þá förum við austur á firði) og suður til Reykjavíkur og skiptir þá engu hvaðan lagt er upp.

Ég var að gagnrýna Jönna fyrir það að skrifa Hnífsdal með litlum staf, guð hjálpi þér, nei nei nei.
Hjúkkitt maður, annars hefði ég verið hrædd um að ég yrði með litlum staf hjá ykkur næst........
Síðast er vjer vissum voru Vestfirðir í NORÐURátt frá suðvesturhorninu.
Allar leiðir liggja til Rómar ERGO við förum norður á Strandir, vestur á firði (nema um sé að ræða austfirðina, þá förum við austur á firði) og suður til Reykjavíkur og skiptir þá engu hvaðan lagt er upp.
Það er oss fullkunnugt um en Vestfirðir eru samt í norðurátt Fer suður að Strandarkirkju í Selvogi og ætlar til baka beint í norður til Reykjavíkur en prófar að fara í staðinn í hásuður, endar í Reykjavík eftir ferðalag kringum nær allan hnöttinn og sannfærist um að Reykjavík sje í suður.
Það mun aldrei gerast hjá mér Ísdrottning mín kær.
Ljómar upp
Horfir uggvekjandi augum á Jörnljót Já, þú segir það já. Vertu eitthvað, hvað var það aftur, nei, man það ekki. Passaðu bara uppá málfarið og stafsetninguna, og engan skæting. Þá ættirðu að sleppa við atgeirinn, þó það sé kannski of seint núna.
Rólegur Gunnar minn, það er ekki þess virði að vera að skíta út atgeirinn út af honum.
Iss, nýliðablóð er bara hollt og gott, styrkir klærnar.
Það er alveg rétt, betra samt að nota eitthvað ,,óvirðulegra vopn'' á óvirðulegt fólk.
Voru allir óvenju góðir við mig þegar ég byrjaði að koma hingað eða er ég bara svona fljót að gleyma misþyrmingunum? Erum við kannski sprautuð með einhvurslags gleymskulyfi til að við munum ekki eftir því?

Já, spurning hvort maður noti ekki bara bogann í þetta skiptið.
Voru allir óvenju góðir við mig þegar ég byrjaði að koma hingað eða er ég bara svona fljót að gleyma misþyrmingunum? Erum við kannski sprautuð með einhvurslags gleymskulyfi til að við munum ekki eftir því?
Ætli bragfræðikunnátta ásamt kurteisi við alla hafi ekki verið lykillinn að góðu upphafi. Ekki get ég samt fullyrt það.
Ég man vel eftir mínum móttökum. Þær voru bara svona lala einhvern veginn. Bismark og Smábaggi sáu um að rífa niður meðaltalið.
Voru allir óvenju góðir við mig þegar ég byrjaði að koma hingað eða er ég bara svona fljót að gleyma misþyrmingunum? Erum við kannski sprautuð með einhvurslags gleymskulyfi til að við munum ekki eftir því?
Ætli bragfræðikunnátta ásamt kurteisi við alla hafi ekki verið lykillinn að góðu upphafi. Ekki get ég samt fullyrt það.
Ég hallast meira að gleymskulyfinu.
glottir við B. Ewing