Þessi þráður er til að stofna til illinda og að hreyta ónotum í næsta (kven)mann eða næstu (kven)menn.
Mikið djöfulli eru Enter og Númi til mikilla leiðinda hérna. Enter er með svo fíflalegt nafn að manni verður óglatt (amma hefði sagt Return) og Númi heldur því fram að með því að tyggja skro geti maður framleitt 300 grömm af munnvatni. Gjörsamlega glataðir báðir tveir.
Bölverkur er nú meiri bölv.. hausverkurinn. alltaf að stofna til illinda og ónota. Blótar herfilega og rífur hár sitt
Lokið þessum þræði! Hann verður bara uppspretta leiðinda og illinda!
Félagsskítur! Held allir viti að þetta er svona nasasnýtingsleiðindi, bara í gríni gert.
Farðu að stofna þennan iðrun og yfirbót þráð sem þú varst beðinn um þarna Böllverkur! Blótar herfilega og rífur hár sitt
Það er til þráður sem heitir Opinberar afsakanir, virkar vel fyrir þessa umræðu.
xT
Ekki það að ég vilji vera með (mikil) ónot, en er ekki nafnið þitt runnið undan rótum mínum, Hvæsidillumeistari? Hvenær fæ ég höfundarréttargreiðslurnar frá þér? Heldurðu að þú getir bara umyrðalaust stolið hugmynd minni, án þess að borga dýru verði fyrir? HA?
Jú það passar drottning vor.
Og er það einmitt ástæðan fyrir komu minni hingað.
Í höfundarlaun skelli ég upp stóru mexíkósku hlaðborði þér tl heiðurs.
Gefð'enni gullkort og send'ana í verslunarleiðangur til Prag! Kóngsi verður feginn að fá smá frið til að æfa sig með sverðið með tilheyrandi og sértilbúnum hljóðeffectum að hætti alvöru Ninja.
Pakkar gullkorti og flugmiða í gylltan gjafapappír og merkir Júlíu
þökk fyrir ábendinguna.
Ljómar upp
Hjartans þakkir fyrir sendinguna, kæri Hvæsidillumeistari! Þú ert nú opinberlega kominn á náðina og mátt búast við góðum gjöfum sem tákn um velþóknun drottningar á komandi mánuðum og misserum. Ég kaupi máke eitthvað smáræði handa þér með nýja kortinu mínu - hvernig litist þér á þægilega eyju í Karabíahafi, snekkju til að komast um og einkaþotu fyrir stuttar helgarferðir?
Sama og þegið kæra drottning.
Mær nægir ákavíti og landi öðru hverju , sem og 3-4 baunir á viku.
Notaðu kortið góða í eitthvað skemmtilegt og notarlegt fyrir þig, því kortið var nú gjöf.
Hneigir sig og heldur áfram að vinna aukavinnu við uppvask til að reyna að halda í við kortareikninginn
Gefur hvæsa 400 handsaumaða silkisloppa til að selja fyrir reikningnum
Sat sveittur í alla nótt og saumaði!
Gefur frá sér vellíðunarstunu